Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Magnað að kynnast þrautseigju fólks: Ólöf býr í Pakistan

Ólöf Magnúsdóttir vinnur fyrir UNICEF í Pakistan og kom í stutta heimsókn til Íslands um jólin.

Ólöf var gestur morgunútvarps Rásar 2 í morgun. Í viðtalinu sem hægt er að hlusta á hér sagði hún m.a. frá starfi sínu í Pakistan en þar sér hún um fjáröflun og samskipti við veitendur framlaga.

Ólöf benti á að Pakistan væri land sem gengið hefði í gegnum miklar hörmungar síðastliðin ár. Þar varð til dæmis öflugur jarðskjálfti árið 2005, gríðarleg flóð árið 2010 og aftur í fyrra, auk þess sem langvarandi átök eru á landamærum Afganistan og Pakistan.

Ólöf lagði áherslu á að börn í Pakistan hefðu gengið í gegnum gríðarlega mikið síðastliðin ár.

„Þetta er land þar sem maður er stöðugt forviða á hverjum einasta degi,“ sagði hún meðal annars þegar hún var spurð út í hvernig væri að vinna í Pakistan.

Viðtal í Morgunblaðinu

Í Morgunblaðinu í dag er einnig að finna viðtal við Ólöfu þar sem hún segir frá lífinu í Pakistan og störfum sínum fyrir UNICEF. Ólöf vann áður m.a. fyrir UNICEF í Palestínu, Sri Lanka, Georgíu og Síerra Leóne.

„Það er magnað að fá að vera í löndum sem maður hefði annars aldrei getað heimsótt, hvað þá fengið að búa þar. Og það er ómetanlegt að fá að kynnast fólki sem hefur mikla
þrautseigju og þolinmæði gagnvart öllu því sem lífið hendir framan í það. Mér finnst forréttindi að fá að starfa við þetta,“ segir hún í viðtalinu í Morgunblaðinu.

„Vissulega er þetta stundum erfitt, en þetta gerir mig líka mjög þakkláta, til dæmis fyrir
að eiga heima á Íslandi. Ég kem alltaf hingað heim í einhverri þakklætiskátínu,
full af gleði og kærleik.“

Ólöf segir einnig frá því að 90% starfsfólks á skrifstofunni hennar væri heimafólk - frá Pakistan - og 10% útlendingar eins og hún.

Hún segir sömuleiðis að öll þessi reynsla breyti henni til langframa sem manneskju. „Ég finn að ég er alltaf ánægðari með hlutskipti mitt í þessum heimi og sífellt þakklátari. Ég horfi vissulega öðrum augum á lífið og tilveruna.“

Starf sem breytir lífi barna

Þar sem Ólöf hefur unnið fyrir UNICEF í mörg ár þekkir hún út og inn hvernig starf samtakanna breytir lífi barna um víða veröld - á hverjum degi. Framlög heimsforeldra skipta þar ekki síst sköpum.

Þar er ánægjulegt að vita að þúsundir Íslendingar eru heimsforeldrar hjá UNICEF!

Tengdar ljósmyndir
Ólöf með ungum stúlkum í Palestínu þar sem hún vann um skeið fyrir UNICEF. Myndin er úr Morgunblaðinu.