hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!
Þú ert hér:
Gínea-Bissá
Gínea-Bíssa er í vesturhluta Afríku. Landið liggur að Norður-Atlantshafi og á landamæri að Gíneu og Senegal.
Portúgalar gerðu ár og strendur Gíneu-Bissá að nýlendu á 15. öld og var landið þungamiðja portúgalskrar þrælaverslunar á 17. og 18. öld. Uppreisn gegn yfirráðum Portúgala leiddi til sjálfstæðis árið 1974.
Gínea-Bissá er meðal tíu fátækustu ríkja heims. Samkvæmt skýrslu Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna um lífsgæði frá 2007/8 er Gínea-Bissá í 175. sæti af þeim 177 löndum sem skýrslan nær til. Til samanburðar er Ísland í 1. sæti.
Þessi veruleiki endurspeglast meðal annars í skelfilega hárri dánartíðni bissáskra barna en því sem næst fjórða hvert barn nær ekki fimm ára aldri í landinu.
Þá fara rúmlega 45% barna á grunnskólaaldri (7-13 ára) á mis við menntun. Meirihlutinn eru stúlkur enda er aðeins um fjórðungur kvenna í Gíneu-Bissá læs.
Íbúafjöldi: 1,57 milljónir
Höfuðborg: Bissá
Barnadauði undir 5 ára: 195/1.000
Barnadauði undir 1 árs: 117/1.000
Lífslíkur við fæðingu: 48 ár
GDP á mann: 291 USD
Árleg fólksfjölgun: 2,4%
Þegnar yngri en 18 ára: 769 þúsund
Skólasókn barna á grunnskólaaldri: 54%
Nígería
Nígería er í Vestur-Afríku. Landið liggur að Gíneuflóa og er með landamæri að Benín og Kamerún. Nígería var áður bresk nýlenda en hlaut sjálfstæði árið 1960. Næstu sextán árin voru herforingjastjórnir við stjórnvölinn í Nígeríu. Árið 1999 var hins vegar tekinn upp ný stjórnarskrá og þar með lauk friðsamlegu umreytingarferli þar sem völdin voru færð í hendur borgaralegra stjórnvalda.
Þrátt fyrir að mikið sé af náttúrulegum auðlindum í Nígeríu, eins og t.d. olíu, stendur efnahagur landsins engan veginn undir grunnnþörfum íbúanna. Þetta má fyrst og fremst rekja til gríðarlegs og vaxandi fólksfjölda. Landið er hið fjölmennasta í allri Afríku. Þar búa um 130 milljónir manna og er einn af hverjum fimm Afríkönum er nígerískur.
Samkvæmt skýrslu Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna um lífsgæði frá 2006 er Nígería í 159. sæti af þeim 177 löndum sem skýrslan nær til. Til samanburðar er Ísland í 2. sæti. 70,8% þjóðarinnar draga fram lífið á minna en einum bandaríkjadal á dag og 92,4% á minna en tveimur bandaríkjadölum.
Íbúafjöldi: 151 milljónir
Höfuðborg: Abuja
Barnadauði undir 5 ára: 186/1.000
Barnadauði undir 1 árs: 96/1.000
Lífslíkur við fæðingu: 48 ár
GDP á mann: 1.092 USD
Árleg fólksfjölgun: 2,4 %
Íbúar yngri en 18 ára: 75,4 milljónir
Skólasókn barna á grunnskólaaldri: 63%
Svasíland
Svasíland er í suður-Afríku. Landið á landamæri að S-Afríku og Mósambík.
Árið 2001 varð landið fyrir miklum þurrki sem, árið 2006 hafði náð til allra landshluta Svasílands. Árið 2004 lýsti ríkisstjórn landsins yfir neyðarástandi vegna þurrksins. Aftur á móti er hin raunverulega neyð Svasílands fólgin í þeim gríðarlega HIV og AIDS faraldri sem þar er. Meira en 200.000 manns af aðeins 1.1 milljón heildarfjölda íbúa eru með HIV og u.þ.b. 4000 nýburar smitast árlega af HIV.
Lífslíkur hafa lækkað úr 57 árum í u.þ.b. 37 ár á einum áratug. Fjöldi munaðarleysingja hefur hækkað úr 12.000 árið 1999 í 70.000 árið 2005.
Talið er að hápunkti faraldsins sé ekki enn náð og áhrifin sem hann mun hafa á börn eru gríðarleg, þ.m.t. aukið brottfall úr skólum, aukin vannæring og merki eru um aukna félagslega bilun sem mun leiða til aukins ofbeldis, nauðgana, vanrækslu og að foreldrar munu í auknum mæli yfirgefa börn sín.
Íbúafjöldi: 1,16 milljónir
Höfuðborg: Lobamba
Barnadauði undir 5 ára: 83/1.000
Barnadauði undir 1 árs: 59/1.000
Lífslíkur við fæðingu: 46 ár
GDP á mann: 2.478 USD
Árleg fólksfjölgun: 2,4 %
Íbúar yngri en 18 ára: 561 þúsund
Skólasókn barna á grunnskólaaldri: 84%
Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá þessum löndum sem starfsfólk UNICEF hefur tekið í heimsóknum sínum. Auk þess eru myndir frá Svasílandi frá ferð Sigurrósardrengja fyrir Dag rauða nefsins 2006.