English version

Saga UNICEF á Íslandi

2003
Mars        Fulltrúar frá svæðisskrifstofu UNICEF í Genf komu til landsins til að ræða stofnun landsnefndar fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. 
Maí           Stjórn UNICEF Ísland mynduð.
Júní          Samstarfssamningur (Memorandum of understanding) við UNICEF undirritaður.
Nóv.          Karin Sham Poo, þáverandi aðstoðarframkvæmdastjóri UNICEF, heimsótti hina nýju landsnefnd á Íslandi. 
Des.         UNICEF Ísland skrásett sem sjálfseignarstofnun.

2004
Mars         Þann 12. mars var skrifstofa UNICEF á Íslandi formlega opnuð. Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra, dró fána Sameinuðu þjóðanna að hún við skrifstofuna í Skaftahlíð.
Mars         Þann 15. mars skrifaði UNICEF Ísland undir samstarfssamning við stofnstyrktaraðila sína Pharmaco (nú Actavis), Samskip, Baug Group og Allianz. Með þessum samningum var lokaáfanga náð við stofnun UNICEF á Íslandi og starfsgrundvöllur þess tryggður til næstu tveggja ára.
Mars         Þann 23. mars styrkti Baugur Group verkefni fyrir ung börn í Gíneu-Bissá um 20 milljónir króna. Þetta var fyrsta tvíhliða verkefni UNICEF Ísland og því afar mikilvægt að hafa fengið trausta aðila eins og Baug Group til að standa að því með okkur. Með þessum samningi varð Baugur Group einn helsti styrktaraðili UNICEF á Íslandi.
Apríl         Carol Bellamy, þáverandi framkvæmdastjóri UNICEF, skrifaði undir samstarfssamning til 2 ára við íslensku landsnefndina.
Maí           Heimsforeldraverkefni UNICEF var hleypt af stokkunum á Íslandi. Frú Vigdís Finnbogadóttir gerðist verndari heimsforeldra.
Sept.        Cream Wright, yfirmaður menntamála UNICEF, heimsótti Ísland og heldur fyrirlestur um mikilvægi skóla og menntunar í þróunarlöndunum.
Okt.          Vinnusmiðja fyrir ungmenni á öllum Norðurlöndunum, sem gengur út á að gera einnar mínútu myndbönd, var haldin á Íslandi. Nærri 20 ungmenni tóku þátt og tvær myndir frá Íslandi komust í úrslit í heimskeppni Einnar mínútu myndabanda í Hollandi. Vinnusmiðjunni er ætlað að vera vettvangur fyrir skoðanir ungs fólks og tækifæri til að þau láti rödd sína heyrast.
Nóv.         Harry Belafonte, velgjörðarsendiherra UNICEF, kom til landsins á 15 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Af því tilefni var fulltrúaráð UNICEF hleypt af stokkunum og ljósmyndasýning á UNICEF myndum opnuð í Smáralind.

2005
Jan.         UNICEF Ísland tók þátt í Neyðarhjálp úr norðri, söfnun fyrir fórnarlömb flóðbylgjunnar við Indlandshaf.
Feb.        Farið var í vettvangsferð til Gíneu-Bissá með Hreini Loftssyni stjórnarformanni Baugs Group til að skoða styrktarverkefni Baugs í landinu.
Apríl        Caoz dreifir mynddiskum um Litlu lirfuna ljótu til allra heimila á landinu til styrktar UNICEF og Umhyggju.
Maí          Björk Guðmundsdóttir gaf út endurhljóðblandanir ýmissa tónlistarmanna af laginu Army of me til styrktar neyðarverkefna UNICEF.
Júlí          Sjónvarpsstöðin Sirkus og UNICEF taka höndum saman og sýna Live8 tónleikanna í 12 klukkustunda beinni útsendingu og hvetja fólk til að skrá sig sem heimsforeldrar. Margir komu að söfnuninni, þar á meðal 365, Sirkus, Vodafone og Pegasus.
Sept.       Fólk með Sirrý á Skjá einum var tileinkaður UNICEF og heimsforeldrum í tveggja tíma löngum söfnunarþætti. Sýnt var frá verkefnum UNICEF í Kenía.
Sept.       Pétur Björnsson, fyrrverandi forstjóri Vífilfells, gaf 5 milljónir til verkefnis í Gíneu-Bissá sem miðar að því að joðbæta salt og mennta konur.
Okt.         UNICEF Ísland sendi út 2,5 milljónir til neyðarverkefna UNICEF eftir jarðskjálftana í Pakistan. Okt.         UNICEF flytur skrifstofu sína á Laugaveg 42, 101 Reykjavík.
Nóv.        Sala á dúkkum Kvenfélagasambands Íslands til styrktar menntun stúlkna í Gíneu-Bissá hófst. Verkefnið aflaði 3 milljónum til uppbyggingar skóla í þessu fátæka Afríkuríki. Sala á jólakortum hófst.
Des.        Sir Roger Moore, velgjörðarsendiherra UNICEF, kom til landsins og var viðstaddur þegar Baugur Group, FL Group og Fons skrifuðu undir stærsta styrktarsamning til þróunarverkefnis sem undirritaður hafði verið á Íslandi. Um var að ræða styrk að upphæð 135 milljónir króna til menntaverkefnis í Gíneu-Bissá. Vegna styrksins fá yfir 100 þúsund börn tækifæri til að ganga í skóla. Upplýsingafulltrúi UNICEF í Gíneu-Bissá, Yolanda Correia, kom einnig til Íslands og skýrði frá hversu mikla þýðingu þetta hefði fyrir land hennar og þjóð og að hverri krónu yrði vel varið.
Í tilefni af fullveldisdegi okkar Íslendinga, 1. desember, héldu þessir styrktaraðilar UNICEF fullveldishátíð þar sem söfnuðust yfir 80 milljónir króna á uppboði. Þessum styrk hefur verið varið til verkefna sem bjargað hafa lífi barna í Gíneu-Bissá, s.s. í að joðbæta salt, dreifa malaríunetum, vítamínum og bólusetningu.

2006
Jan.         Björk Guðmundsdóttir heimsótti verkefni UNICEF í Banda Aceh. Rúmt ár var síðan flóðbylgjurnar eyðilögðu samfélög við Indlandshaf og uppbyggingarstarf UNICEF var enn í fullum gangi.
Apríl         Hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir, landslagsarkítekt, og Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, styrktu menntaverkefni UNICEF í Síerra Leóne um rúmlega 36 milljónir króna. Verkefnið nær til þriggja ára og veitir á fimmta þúsund barna tækifæri til náms.
Maí           Þann 4. maí styrktu Hreinn Loftsson hrl., Lýsi hf., Frímúrarareglan á Íslandi, Eimskipafélagið, Samherji, Klofningur, Íslenska umboðssalan, Salka-Fiskmiðlun, Norlandia, Ice-Group og Félagsbúið Miðhrauni bólusetningarverkefni gegn mænusótt í Nígeríu um rúmlega 20,5 milljóna króna. Íslenska ríkið veitti auk þess 100.000 dollurum til átaksins í gegnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO). Framlagið frá Íslandi nam því alls tæpum 28 milljónum króna (375.000 USD).
Júlí           Ann M. Veneman framkvæmdastjóri UNICEF kom til landsins og heimsótti skrifstofu UNICEF á Íslandi 14. júlí. Hún heimsótti einnig utanríkisráðherra og ræddi um framlög Íslands til UNICEF. Hún hrósaði einstaklingum sérstaklega fyrir að hafa tekið Barnahjálpinni svona vel hér á landi og fyrir rausnarleg framlög til barna um allan heim.
Okt.          Ungmennaráð UNICEF Ísland formlega stofnað.
Nóv.         Tveggja ára samstarfssamningi við stofnstyrktaraðila lauk árið 2006. Í byrjun nóvember gerðust Baugur Group, FL Group, Fons, Glitnir og Samskip bakhjarlar UNICEF á Íslandi og hljóðar samningurinn upp á 20 milljónir króna á ári næstu þrjú árin. Þessir samningar tryggja starfsgrundvöll landsnefndarinnar og gerir henni kleift að afla fjárstuðnings til styrktar börnum í sárri neyð. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla var að halda dag rauða nefsins.
Nóv.         Hljómsveitin Baggalútur gaf út lagið Brostu til styrktar UNICEF í tengslum við dag rauða nefsins. Rauðu nefin komu í verslanir og voru seld með góðum árangri. Allur ágóði rann til almennra verkefna UNICEF um allan heim.
Nóv.         Hljómsveitin Sigur Rós hélt ljósmyndasýningu til styrktar UNICEF. Á sýningunni voru myndir sem meðlimir Sigur Rósar höfðu tekið þegar þeir heimsóttu alnæmisverkefni UNICEF í Svasílandi í sunnanverðri Afríku.
Des.        Þann 1. desember var dagur rauða nefsins haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Hápunktur söfnunarinnar var þriggja tíma söfnunarþáttur á Stöð 2. Alls bættust yfir 4000 heimsforeldrar í hópinn. Leikarar og skemmtikraftar landsins lögðu sitt af mörkum til styrktar börnum um allan heim. Fyrirtækin 365, Icelandair, Vodafone, Saga Film og fleiri komu að þættinum.

2007
Jan.         UNICEF og Námsgagnastofnun kynna kennsluefnið „Allir eiga rétt“ gagnvart almenningi og skólum. Námsefnið er að finna á vefsíðunni www1.nams.is/unicef.
Maí          UNICEF-hreyfingin hefst en hún sameinar hreyfingu og fjáröflun í grunnskólum landsins. Kópavogsskóli, Lauganesskóli og Álftamýrarskóli voru fyrstu skólarnir til að prófa þetta verkefni og gekk það vonum framar.
Nóv.        Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna verður 18 ára og UNICEF fagnar tímamótunum með málþingi í Norræna húsinu.
Des.       UNICEF Ísland og Prentsmiðjan Oddi kynna samstarf sitt.

2008
Jan.       Hljómdiskurinn The Steinsson project: Backtracking eighties kom út til styrktar menntaverkefnum UNICEF í Síerra Leóne. Elfar Aðalsteinsson stóð að baki útgáfunni.
Apr.       UNICEF og Orkuveita Reykjavíkur hleypa af stokkunum Vatnsviku UNICEF. Fjöldi veitingastaða bauð gestum að kaupa vatn sem rann óskert til vatnsverkefna UNICEF. OR tvöfaldaði söfnunarupphæðina.
Apr.       Listamaðurinn Tolli málar hundrað pappahús til að vekja athygli á UNICEF Verndurum, sem er fjáröflunarverkefni meðal lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en fyrirtækin styrkja menntaverkefni í fátækustu ríkjum Vestur-Afríku.
Maí       Fellibylur skellur á Mjanmar (Búrma). UNICEF á Íslandi hóf neyðarsöfnun og sendi út 2,5 milljónir til hjálparstarfs í landinu.
Sept.     Samstarf um sölu á kaffi frá Te & kaffi til fyrirtækja hefst. Miðlun hringir út og 20% af söluhagnaði rann til UNICEF.
Sept.     Formlegt samstarf milli íslensku friðargæslunnar og UNICEF hefst þar sem sendir  verða út Íslendingar í starf upplýsingafulltrúa UNICEF á neyðarsvæðum. Námskeið er haldið í húsnæði UNICEF á Íslandi fyrir tilvonandi friðargæsluliða.

2009
Jan.       Neyðarsöfnun fyrir börn á Gaza hefst í kjölfar árása Ísraela á svæðið. 1,6 milljónir króna söfnuðust frá almenningi.
Feb.      Velgerðarsjóðurinn Aurora úthlutar 40 m. kr. til menntaverkefnis UNICEF í Síerra Leóne og 3,5 m. kr. til útvarps ungmenna í Mósambík.
Mars     Heimsdagur barna í fjölmiðlum er haldinn hátíðlegur á Rás 1 og 2. Stefán frá UNICEF og Sigrúnu Stefánsdóttir frá RÚV skrifa undir samstarfsyfirlýsingu sem kveður á aukna þátttöku barna í fjölmiðlum. M.a. um útvarpsþátt ungmenna á Rás 1 og Fréttaritaraþjálfun unga fólksins, sem stóð yfir í mars og apríl um allt land.
Mars      Te & kaffi hefur aftur að selja kaffi til styrktar UNICEF. Samstarf UNICEF og Te & kaffis er víkkað út með sölu á styrktarspjöldum í verslunum fyrirtækisins.
Sept.      23. sept-4. okt. stendur yfir vitundarvakning um kynferðisofbeldi gegn konum í Austur-Kongó sem UNICEF og V-dagurinn standa sameiginlega að. Safnað er fyrir verkefni UNICEF í A-Kongó.
Okt.       Fyrsti útvarpsþáttur ungmenna um Barnasáttmálann fer í loftið á Rás 1.
Des.       Dagur rauða nefsins haldinn með pompi og prakt í 6 klukkustunda útsendingu á Stöð 2.

2010
Feb.      Átak um að efla samskipti við heimsforeldra UNICEF hófst. Hringt var í fólk og þeim þakkað fyrir framlögin. Um leið var fólki boðið að hækka stuðning sinn. Átakið stóð yfir til lok júní og tókst með eindæmum vel.