Vissir þú að...

UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.

Þú ert hér:  

Sannar gjafir

Sannar gjafir eru raunverulegar gjafir sem breyta lífi nauðstaddra barna. Gjöfunum sem þú kaupir í vefverslun UNICEF er dreift til barna og fjölskyldna þeirra í samfélögum þar sem þörfin er mest árið um kring.

Þegar þú kaupir sanna gjöf handa vini eða fjölskyldumeðlim fær viðtakandinn persónulegt gjafabréf með ljósmynd eða lýsingu á gjöfinni þinni. Varan verður þvínæst send frá vöruhúsi UNICEF í Kaupmannahöfn til einhvers af þeim 155 löndum sem Barnahjálpin starfar í, allt eftir því hvar þörfin er mest.
Við bjóðum upp á gott val af gjöfum, þar á meðal bóluefni, vatnsdælur, moskítónet og margt fleira. Kynntu þér endilega úrvalið hér fyrir neðan.

Á hverju ári deyja 150.000 börn af völdum sníkjudýrasýkinga. Fyrir aðeins 1.257 krónur getur þú verndað 300 börn gegn sýkingu.  
1.257kr.
Í Afríku lætur barn lífið af völdum malaríu á 45 sekúndna fresti. Þessi endingargóðu moskítónet eru húðuð með flugnaeitri til þess að veita aukavörn gegn þessum skaðlega sjúkdómi.    
1.436kr.
Fleiri en 600 börn deyja á hverjum degi af völdum mislinga. Fyrir aðeins 1.740 krónur er hægt að útvega bóluefni gegn þessum banvæna sjúkdómi fyrir 50 börn.    
1.740kr.
Fjörutíu stílabækur og fjörutíu blýantar kosta einungis 2.332 krónur, en þessi einföldu skólagögn  eru nauðsynlegur hluti af námi barna.  
2.332kr.
Fótbolti
Fótbolti er ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar maður vill hjálpa börnum í neyð. Fótbolti getur hins vegar breytt aðstæðum til hins betra.
3.625kr.
Með þinni hjálp getur UNICEF útvegað sjúkrahúsum og starfsfólki í heilsugæslu þessa einföldu vigt til að greina vannæringu hjá ungabörnum.
4.253kr.
Gefandi gjafakarfa
Þessi einstaka gjafakarfa inniheldur gjafir sem breyta lífi nauðstaddra barna um allan heim. Fyrir 4.786 krónur gefur þú gefandi gjafakörfu fulla af sönnum gjöfum.   
4.786kr.
Orkukex
16 kíló af orkuríkum kexkökum geta hjálpað börnum í neyð, hvort sem þau hafa orðið illa úti í jarðskjálfta, flóðum, fellibyl eða átökum.  
5.794kr.
Vatnshreinsitöflur
Fyrir 6.960 kr. er hægt að hreinsa 50.000 lítra af óhreinu vatni og breytt því í heilnæmt drykkjarvatn. Þannig getur þú bjargað lífi fjölda barna.  
6.960kr.
150 pakkar af næringarríkri fæðu úr jarðhnetum. Fæðan er tilbúin til neyslu beint úr pakkanum og hún geymist í tvö ár.  
8.483kr.
Með því að gefa næringarmjólk ertu að hjálpa börnum sem líða fyrir alvarlega vannæringu.
8.541kr.
Reiðhjól
Reiðhjól eins og þetta getur gert gæfumuninn í að bæta líf barna með því að útvega greiðari aðgang að menntun og heilsugæslu.    
10.005kr.
Skóli í kassa
Skóli í kassa er málmbox sem er fullt af kennslu- og námsgögnum sem geta hjálpað allt að 40 börnum að halda skólagöngu sinni áfram við neyðaraðstæður.
27.403kr.
Vatnsdæla
Með því að gefa einhverjum sem þér þykir vænt um vatnsdælu getur þú hjálpað til við að útvega heilu samfélagi heilnæmt og öruggt drykkjarvatn.  
58.000kr.
Mótorhjól
Hjálpaðu heilbrigðisstarfsfólki að ná til barna sem eiga um sárt að binda. Þetta er gjöf sem getur bjargað þúsundum barna.  
355.520kr.