English version

Siðareglur UNICEF Ísland

Formáli 
Sérhverju starfi fylgja tilteknar skyldur og þá um leið tilteknar siðareglur þó svo að oft sé þar um að ræða augljósa framlengingu á þeim siðareglum sem almennt gilda í samfélaginu. 
Siðareglur stofnunar, samtaka, félags eða fyrirtækis eru leiðbeiningar um það hvernig æskilegt er að starfsfólk bregðist við þegar siðferðileg álitamál koma upp í störfum þess. Í siðareglum birtast gjarnan þau gildi sem eiga að einkenna samskipti á vinnustað. Slíkar reglur ná til allra starfsmanna vinnustaðarins. 
Siðareglum er ætlað að auðvelda einstaklingum að rækja störf sín vel. Þær leysa fólk þó ekki undan þeirri ábyrgð að reiða sig á eigin samvisku í siðferðislegum efnum. Mikilvægasta hlutverk skráðra siðareglna er að veita almennari viðmiðanir um breytni og faglega ábyrgð en lagareglum er ætlað, enda gilda þær áfram þegar hinum lögfestu reglum sleppir. 
Þessum siðareglum er einnig ætlað að varðveita gott orðspor UNICEF Íslands, ímynd og trúverðugleika.

Enn fremur geta siðareglur komið að gagni á eftirfarandi hátt:
• Þær gefa skýrt til kynna hvaða gildi stjórnendur telja mikilvæg fyrir menningu vinnustaðarins.
• Þær hvetja starfsfólk til faglegra vinnubragða.
• Þær auka samkennd og samheldni á vinnustað.
• Þær upplýsa um þau atriði sem samtökin leggja áherslu á í samskiptum við almenning.
• Þær minnka líkurnar á áföllum og hneykslismálum. 

1. Ábyrgð gagnvart styrktaraðilum; einstaklingum og fyrirtækjum, og þeim sem leita til UNICEF Ísland

1.1. Starfsfólk UNICEF Ísland veitir styrktaraðilum sínum og þeim sem leita til landsnefndarinnar góða þjónustu og sinnir samskiptum við þá samviskusamlega og af virðingu.

1.2. Fyllsta trúnaðar og nafnleyndar skal gætt við styrktaraðila, nema að um annað sé rætt. Starfsfólk, sem hefur aðgang að trúnaðarupplýsingum styrktaraðila, skal gæta fyllstu varúðar hvar og hvenær sem málefni styrktaraðla eru til umræðu og meðhöndla gögn sem innihalda trúnaðarupplýsingar af varúð.

1.3. Starfsmenn skulu ekki nota trúnaðarupplýsingar styrktaraðila sér til framdráttar eða í þágu einkahagsmuna sinna.

1.4. Starfsfólk UNICEF Ísland mismunar ekki fólki sem leitar til landsnefndarinnar, til dæmis vegna kyns, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs, fötlunar, þjóðernis, trúarbragða eða skoðana. Það veitir engum sérstaka fyrirgreiðslu á grundvelli persónulegra tengsla.

2. Ábyrg fjáröflun

2.1. Starfsfólk UNICEF Ísland skal ekki afla styrkja með ólögmætum hætti eða með blekkingum.

2.2. Leitast skal við að styrktaraðilar viti hvernig fjármunum þeirra verði varið. Sömuleiðis skulu starfsmenn ekki gefa misvísandi upplýsingar.

2.3. UNICEF Ísland leitast við að halda skrifstofukostnaði í lágmarki.
Starfsmenn skulu fara í öllu eftir verklagsreglum um fjáraflanir.

3. Ábyrgð á vinnustað

3.1. Starfsfólk UNICEF Ísland skal sinna störfum sínum af kostgæfni.

3.2. Starfsfólk skal leggja sig fram um að UNICEF Ísland sinni hlutverki sínu og að skaða ekki orðstír samtakanna.

3.3. Starfsfólk skal forðast að taka að sér opinber verkefni sem samræmast ekki skyldum eða starfi þeirra hjá UNICEF (t.d. stjórnarseta í fyrirtækjum, þátttaka í stjórnmálum, auglýsing vöru eða þjónustu, o.þ.h.). Ef slík vafamál koma upp verður að leita samþykkis stjórnar.

3.4. Virðing skal höfð að leiðarljósi í samskiptum starfsmanna og ekki skal mismuna starfsfólki á grundvelli kyns, þjóðernis, trúarbragða, skoðana eða annarra þátta.

3.5. Starfsfólk UNICEF Ísland gætir þess að fara vel með fjármuni og önnur verðmæti, sem þeim er trúað fyrir eða þeir hafa til umráða vegna starfs síns og nota þau ekki í þágu einkahagsmuna sinna.

4. Ábyrgð gagnvart almenningi og fjölmiðlum

4.1. Í samskiptum við ytri aðila, s.s. fjölmiðla, fréttastofur og almenning, skal fyrst og fremst gæta réttsýni og þess að samskiptin séu trúanleg og tímanleg. Trúverðugleiki UNICEF Ísland er lykillinn að því að efla og treysta orðstír UNICEF og ímynd samtakanna út á við.

4.2. Starfsfólk UNICEF Ísland gætir þess að upplýsingar sem samtökin og verkefni á vegum þeirra séu réttar og eins nákvæmar og kostur er. Það fullyrðir ekki meira en vitneskja gefur tilefni til hverju sinni, heldur viðurkennir hvenær þekking þess er takmörkuð, aflar sér upplýsinga, eða vísar fyrirspurnum til viðeigandi aðila.

4.3. Hver sá sem á í samskiptum við fjölmiðla fyrir hönd UNICEF Ísland, þarf að sýna fram á mikla ráðvendni og gegnsæ vinnubrögð jafnframt því að ljóstra ekki upp án heimildar trúnaðarupplýsingum. Ávalt skal gæta þess að rétt sé farið með upplýsingar, tölfræði og annað á opinberum vettvangi.

4.4. Starfsmenn UNICEF Ísland skulu tryggja að upplýsingafulltrúi sé vel upplýstur um öll mikilvæg mál sem varða hagsmuni landsnefndarinnar og UNICEF í heild.

5. Ábyrgð gagnvart öðrum góðgerðarfélögum

5.1. Heiðarleika og trúnaðar skal gætt í samskiptum við önnur góðgerðarfélög og gæta þess að sameiginleg markmið verði höfð að leiðarljósi í fjáröflunum og kynningu.

6. Gegnsæi í fjármálum og verklagi

6.1. Allar færslur á fjármunum skulu skráðar með viðeigandi hætti í bækur landsnefndarinnar og skal reikningshald vera undir nauðsynlegu innra og ytra eftirliti. Öll gögn UNICEF Ísland skulu vera tiltæk til endurskoðunar.

6.2. Starfsmenn verða að lúta verklagsreglum um fjármál, sem unnar voru af Deloitte.

6.3. Sé grunur um að grunnreglur um meðferð fjármuna hafi verið brotnar þannig að það hafi með beinum eða óbeinum hætti áhrif á UNICEF Ísland, skal það tilkynnt og rannsakað.

7. Viðbrögð við brotum á siðareglum UNICEF Ísland

7.1. Ef vafamál koma upp sem varða siðareglur þessar skal vísa málinu til stjórnar UNICEF Ísland.

7.2. Starfsfólk UNICEF Ísland skal vera vakandi fyrir því að halda siðareglum þessum. Ef starfsmaður verður þess áskynja að reglurnar hafi verið brotnar gerir hann viðvart um það, með því að beina erindi til framkvæmdastjóra, stjórnarformanns, trúnaðarmanns í stjórn eða lögmanns landsnefndarinnar, eftir því sem við á. Rökstudd ásökun um brot á siðareglum má aldrei bitna á þeim sem færir hana fram.