Heilsugæsla í Síerra Leóne
Fjórða til þriðja hvert barn í Síerra Leóne nær ekki fimm ára aldri. Fátækt landsins er undirrót þess að hvergi í veröldinni deyja hlutfallslega jafnmörg börn. Í langflestum tilfellum er um að ræða dauðsföll af völum vannæringar og afstýranlegra sjúkdóma.
UNICEF í Síerra Leóne hefur skilgreint ódýr en áhrifamikil úrræði til að draga úr dánar-tíðni barna. Þar á meðal er bólusetning gegn helstu sjúkdómunum, fræðsla til foreldra um hvernig lágmarka má hættuna á því að barn þeirra veikist og trygging viðeigandi viðbragða við veikndum barns og vannæringu.
Sem dæmi kostar það um 1,3 milljónir króna að bólusetja 1 þúsund börn gegn helstu sjúkdómnum. Skammtur af A-vítamíni fyrir 5 þúsund börn kostar 13 þúsund krónur. Rúmnet með skordýraeitri, til að koma í veg fyrir malaríu, fyrir 1 þúsund fjölskyldur kostar 416 þúsund krónur. Og að koma í veg fyrir smit HIV/alnæmis frá móður til barns kostar 130 krónur.
Helstu orsakir hárrar dánartíðni barna í Síerra Leóne eru vannæring og sjúkdómar sem koma má í veg fyrir með tiltölulega einföldum og kostnaðarlitlum aðgerðum, svo sem malaría, niðurgangur og lungnabólga. Aðgangur barna að grundvallarheilsugæslu er afar takmarkaður. Sem dæmi fá ein-ungis 20% barna með lungnabólgu sýklalyf og 60% barna sem veikjast af malaríu fá nauðsynleg lyf. Um 31% barna undir fimm ára aldri eru undir eðlilegri þyngd og teljast 40% vera vannærð.
Bólusetningar
Umfang bólusetninga hefur hins vegar vaxið jafnt og þétt og er nú svo komið að 54% barna á aldrinum eins til tveggja ára eru bólusett gegn öllum helstu sjúkdómum og 62% hafa verið bólusett gegn mislingum. Þá hafa engin tilfelli af lömunarveiki greinst í Síerra Leóne síðastliðin fjögur ár.
Töluverður árangur hefur einnig náðst í að koma í veg fyrir skort á nauðsynlegum snefilefnum. Viðamikil átök þar sem börnum er gefið A-vítamín og lyf gegn ormum í maga hafa á undanförnum árum náð til 80% allra barna í landinu.
Sjúkdómar
Um 68% þeirra sem búa í dreifbýli hafa ekki reglulegan aðgang að drykkjarhæfu vatni og aðeins fimmtungur hefur aðgang að viðunandi hreinlætisaðstöðu. Þetta gerir það meðal annars að verkum að kólerufar-aldrar koma reglulega upp.
Tíðni HIV/alnæmis er 1,5% og 4,1% hjá barnshafandi konum. Einungis 25% smitaðar barnshafandi konur fá hins vegar lyf til að halda sjúkdómnum í skefjum og færri en 15% smitaðra barna.
Vegna fátæktar landsins og veikburða stjórnkerfis hafa stjórnvöld í Síerra Leóne ekki bolmagn til að draga úr tíðni barna-dauða án utanaðkomandi aðstoðar. UNICEF hefur því sett fram aðgerðaráætlun fyrir árin 2008-2010 sem miðar að því að lækka tíðni barnadauða í landinu og veita börnum betra líf.