þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.
Þú ert hér:
Á árunum 1991 til 2002 geisaði geisaði blóðug borgarastyrjöld í Síerra Leóne. Átökin eyðilögðu skólakerfi landsins og því hafa mörg börn og ungmenni ekki átt kost á skólagöngu í á annan áratug. Er ástandið sérlega slæmt í sveitahéruðum landsins.
Í janúar 2008 veitti Aurora velgerðarsjóðurinn 2 m. USD til menntaverkefna UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Síerra Leóne. Styrkurinn er til þriggja ára og var gefinn í framhaldi af styrk til sama verkefnis upp á 500.000 dollarar (36 m. kr.) árið 2006. Hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt og Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa og Alfesca, stofnuðu velgerðasjóðinn árið 2006 og lögðu honum til einn milljarð króna í stofnframlag.
Fjárstyrkur Aurora velgerðarsjóðsins mun styðja Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, og stjórnvöld Síerra Leóne í því að tryggja öllum börnum á skólaaldri grunnmenntun fyrir 2015. Styrkféð mun sérstaklega vera nýtt í verkefni sem miða að því að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði, einkum með þarfir stúlkubarna í huga.
Í umsögn stjórnar Aurora velgerðasjóðs segir meðal annars:
„Menntun er eitt helsta vopnið gegn fátækt í heiminum og gefur einkum börnum færi á mannsæmandi lífskjörum, eykur sjálfsvirðingu þeirra og hefur víðtæk áhrif til að skapa upplýst samfélag. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur að mati stjórnar Aurora velgerðasjóðs gert heildstæða aðgerðaáætlun um uppbyggingu grunnmenntunar í Síerra Leóne, einu fátækasta ríki heims. Þar er ráðist að rótum vandans og tekið á flestum þáttum sem standa í vegi þess að börn á grunnskólaaldri, einkum stúlkur, njóti þeirra menntunar sem þau eiga rétt á.“
Fyrir styrkféð sem Ingibjörg Kristjánsdóttir og Ólafur Ólafsson veittu árið 2006 voru reistir 50 skólar þar sem tæplega 7 þúsund börn stunda nú nám. Styrkurinn stóð einnig undir þjálfun 258 kennara auk þess sem hluta fjármunanna var varið til kaupa á kennslu- og skólagögnum. Hann var jafnframt notaður til að standa undir kostnaði við fræðslufundi í þeim samfélögum sem notið hafa góðs af verkefninu þar sem íbúar voru fræddir um mikilvægi þess að börn þeirra hlytu menntun.