|
Verklagsreglur varðandi fjáröflun fyrir UNICEF Ísland
- Leita þarf samþykkis UNICEF Ísland fyrir öllum fjáröflunarviðburðum til styrktar UNICEF. Viðburðir sem á einhvern hátt brjóta í bága við landslög eða almennt velsæmi munu ekki verða samþykktir.
- Allir fjáröflunarviðburðir til styrktar UNICEF verða að hlýta almennu siðferði og endurspegla markmið og gildi UNICEF.
- Fjáröflunarþema, fjáröflunaraðferðir og fjáröflunargögn mega ekki vera skaðleg ímynd UNICEF. UNICEF Ísland áskilur sér þann rétt að hafna öllum þeim fjáröflunargögnum sem teljast skaðleg ímynd UNICEF.
- Skipuleggjendur fjáröflunarviðburða mega ekki tala fyrir hönd UNICEF, eða láta líta svo út að þeir komi beinlínis fram á vegum UNICEF.
- UNICEF Ísland áskilur sér þann rétt að draga til baka notkun á nafni sínu, gögnum, og einkennismerki úr fjársöfnunum sem endurspegla ekki markmið og gildi UNICEF.
- Skipuleggjendur fjáröflunarviðburða til styrktar UNICEF teljast sjálfir ábyrgðaraðilar söfnunarinnar, bæði í lagalegum og fjárhagslegum skilningi. UNICEF Ísland afsalar sér allri ábyrgð á hverju því lögbroti og/eða fjárhagslegu misferli sem kann að koma upp við fjáröflunarviðburði sem skipulagðir eru af utanaðkomandi aðilum.
- Skipuleggjendur fjáröflunarviðburða til styrktar UNICEF bera allan kostnað og taka ábyrgð á allri vinnu tengdri viðburðinum, nema annað sé fyrirfram ákveðið í samráði við UNICEF Ísland.
- UNICEF Ísland áskilur sér rétt til að nýta að vild allt fjáröflunar- og kynningarefni sem unnið er í tengslum við safnanir fyrir UNICEF.
- Fjármunir sem safnast til styrktar UNICEF skulu vera í höndum UNICEF Ísland seinast 30 dögum eftir fjáröflunarviðburðinn.
|