English version

Áhugaverðar staðreyndir

  • UNICEF á Íslandi er yngsta landsnefndin í heimi og hefur fengið viðurkenningu innan UNICEF fyrir góðan árangur í fjáröflun.
  • UNICEF er stærsti kaupandi bólusefna í heiminum. Við útvegum 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bólusefni árlega.
  • UNICEF eru stærsti kaupandi moskító-flugnaneta í heiminum. Framleiðsla flugnaneta tvöfaldaðist á árunum 2004 til 2006, þ.e. frá 30 ti 63 milljónum neta. Á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir neta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu.
  • Árið 2004 hjálpuðu skólapakkar UNICEF 10 milljónum barna að hefja nám.
  • UNICEF útvegar alnæmislyf til 39 landa.
  • Þriðjungur hjálpargagna UNICEF eru framleidd í þróunarlöndum. Átta lönd af þeim sem UNICEF kaupir mest af eru lönd þar sem UNICEF er einnig með hjálparstarf í.
  • Birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn er á stærð við þrjá fótboltavelli.
  • UNICEF getur brugðist við neyðarkalli frá hamfarasvæðum á innan við 24 klukkustundum.
  • Meira en helmingi af framlögum til UNICEF er varið til verkefna sem miða að því að bjarga lífum barna (Child Survival).
  • Áætlað er að 27 þúsund börn deyi á dag af orsökum sem auðvelt er að koma í veg fyrir. Það þýðir að barnadauði fer lækkandi því fyrir stuttu síðan var talið að tíðni barnadauða væri 30 þúsund á dag.
  • Á tíunda áratugnum tókst að lækka barnadauða um helming, frá 3 milljónum í 1,5 milljónir.
  • Síðan árið 1999 hefur tekist að lækka barnadauða vegna mislinga um 260 þúsund á hverju ári.