Þú ert hér:  

Starfsemi

Þó svo starf UNICEF á Íslandi sé umsvifamikið en yfirbyggingin lítil og skipulagið nokkuð einfalt. Við leggjum mikið upp úr því að hafa alla uppbyggingu, samninga, fjármál og vinnuferla trausta. Til þess að svo megi verða höfum við notið fulltingis Deloitte og Lögmanna Höfðabakka við að byggja upp traust góðgerðarfélag á Íslandi.

Við hvetjum almenning, fyrirtæki og styrktaraðila til að kynna sér fjármál samtakanna hér á landi og erlendis.

UNICEF á Íslandi er með níu manna sjórn og ungmennaráð. Alls starfa átta manns á skrifstofunni, ýmist í fullu starfi eða hlutastarfi.

Samstarf um allan heim
Landsnefndir UNICEF eru 37 talsins og staðsettar í Vestur-Evrópu, Norður-Ameríku, Japan, Hong Kong, Suður-Kóreu, Ástralíu og Nýja Sjálandi. Um er að ræða sjálfstæð félög sem hafa það markmið að safna fjárstuðningi við verkefni UNICEF í þróunarlöndunum og fræða börn og ungmenni í sínu landi um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, aðstæður í fátækari löndum þessa heims og verkefni UNICEF. Landsnefndirnar afla um 40% af fé UNICEF.

UNICEF Ísland er yngsta landsnefndin, stofnuð 2004. Fyrsta landsnefndin var stofnuð í Bandaríkjunum árið 1947 og árið 1952 var sú fyrsta í Evrópu stofnuð í Belgíu.

Í þróunarlöndunum eru 190 landsskrifstofur UNICEF. Hlutverk þeirra er að sjá um framgang verkefna í hverju landi fyrir sig, að farið sé vel með söfnunarféð, veita upplýsingar um árangur og framgang verkefna og beita sér fyrir nýjum verkefnum í þágu barna.

Innan UNICEF eru síðan sjö svæðisskrifstofur sem gegna mikilvægu hlutverki við að að taka saman og miðla upplýsingum um aðstæður barna í hverju landi fyrir sig, fylgjast með framvindu verkefna og tryggja gegnsæi í fjármálum.

Þannig vinna landnefndir, landsskrifstofur og svæðisskrifstofur UNICEF að því að tryggja rétt allra barna.

Nánari upplýsingar um öll starfslönd UNICEF má finna á www.unicef.org/infobycountry.