English version

Starfsreglur Ungmennaráðs UNICEF Ísland

Hlutverk ungmennaráðs UNICEF Ísland er að vera til ráðgjafar fyrir íslensku landsnefndina og gegna lykilhlutverki í að virkja börn og ungmenni til starfa í þágu barna hérlendis sem og erlendis. Unnið skal að vitundarvakningu ungs fólks og samfélagsins alls um réttindi barna og þróunarmál.

Ungmennaráði UNICEF Ísland er ætlað að veita börnum og ungu fólki vettvang til að láta raddir sínar heyrast og hafa áhrif á umhverfi sitt.

Hlutverk fulltrúa ungmennaráðs er að:
1. Vera ráðgefandi fyrir stjórn og starfsmenn UNICEF Ísland til mótunar á starfsemi landsnefndarinnar
2. Vera fulltrúi og málsvari UNICEF í sínu umhverfi og virkja um leið jafnaldra sína og nánasta umhverfi til þátttöku í samfélaginu og stuðla að vitundarvakningu ungs fólks um réttindi sín og þróunarmál.
3. Vera starfsmönnum UNICEF Ísland innan handar í einstökum verkefnum ef tími og aðstæður ungmennaráðsfulltrúa leyfa.

Fulltrúar
Áhugasamir geta sótt um inngöngu í ráðið með því að senda skriflega umsókn til formanns ungmennaráðs, sem ber umsókninu undir ungmennaráð og starfsmenn landsnefndarinnar. Framkvæmdarstjóri skal þó ávallt hafa úrslitavald um val á fulltrúum í ráðið. Miðað er við að hafa eigi fleiri en 15 manns í ungmennaráði hverju sinni. 

Aldur fulltrúa við inngöngu í ráðið skal liggja á bilinu 13 ára til 18 ára. En leitast verður við að allir áhugasamir um starfsemi ungmennaráðs fái tækifæri til að taka þátt í starfi þess með einhverjum hætti. Framkvæmdastjóri velur fulltrúa í ráðið úr hópi umsækjenda í samráði við ungmennaráð og starfsmenn landsnefndar eftir því sem þörf krefur. Ungmennaráð getur gert tillögur að nýjum fulltrúum í ráðið og skal þeim ábendingum komið til framkvæmdastjóra.

Gerð er krafa um 80% mætingarhlutfall á fundi ungmennaráðs. Ef fulltrúi mætir ekki á fund og getur ekki gefið greinargóða ástæðu fyrir fjarveru sinni telst hann fjarverandi á þeim fundi. Formaður ungmennaráðs skal gefa áminningu þegar fulltrúi fer niður fyrir 80% mætingarhlutfall. Ef hlutfall fulltrúa lækkar frekar, er hægt að vísa honum/henni úr ráðinu. Framkvæmdarstjóri skal þó ávallt hafa úrslitavald um brottvísun fulltrúa úr ungmennaráði.

Starfsreglur
Ungmennaráð skal koma saman eigi sjaldnar en 12 sinnum á ári og skal ungmennaráði auk þess vera boðið á aðalfund UNICEF Ísland í maí ár hvert.

Starfsár ungmennaráðs skal vera frá janúar til desember. Starfsdag skal halda á hverju starfsári, eigi síðar en mánuði eftir fyrsta fund. Starfsdagur er hugsaður bæði sem starfsmótunarfundur fyrir komandi starfsár, en einnig sem hópeflisdagur til að styrkja samheldni innan ráðsins.

Ungmennaráð skal kjósa sér formann í febrúar ár hvert og á formaður sæti í stjórn UNICEF Ísland sem áheyrnarfulltrúi með tillögurétt. Formaður má ekki sitja lengur en í tvö ár í senn. Hlutverk formanns ungmennaráðs skal vera að skipuleggja fundi og hafa yfirsýn yfir starf ráðsins í heild sinni, í samstarfi við starfsmenn landsnefndar og stjórn UNICEF Ísland. Formaður skal ennfremur vera tengiliður ungmennaráðs við stjórn UNICEF, koma sýn ráðsins á framfæri við stjórn, kynna sér stefnu stjórnar og samræma starfsemi ungmennaráðs henni.

Undirbúningur funda er í höndum formanns ungmennaráðs og starfsmanns UNICEF Ísland. Fundi skal boða með þriggja daga fyrirvara. Fundargerð síðasta fundar ásamt fundardagskrá skal send út með fundarboði. Meðlimir geta komið málum á dagskrá fyrir þann tíma. Þau mál sem fulltrúar vilja taka til umræðu eftir þann tíma skulu flokkuð sem önnur mál.

Ungmennaráð skiptist í 3 teymi sem sérhæfa sig í eftirfarandi þáttum: 1. kynningu á starfsemi UNICEF; 2. fjáröflun fyrir starfsemi UNICEF; 3. tækni- og hönnunarstarfi því sem snýr að starfsemi ungmennaráðs. Þessi teymi skulu ávallt vera til staðar, en fleiri teymi má mynda eftir þörfum hverju sinni.

Ungmenni eiga sæti í ráðinu í tvö ár í senn sem stjórn og framkvæmdastjóri UNICEF getur framlengt í fjögur ár.

Ungmennaráð mun ávallt haga ákvarðanatöku eftir samhljóða samþykki (consensus) ef hægt er. Kosið skal um ágreiningsmál, og er það hlutverk þess starfsmanns UNICEF Íslands sem situr fundi ungmennaráðs hverju sinni að kalla til kosninga um þau. A.m.k. 5 fulltrúar ungmennaráðs þurfa að vera til staðar á fundi til að kosning geti talist bindandi.