English version -A +A

Stefna og markmið

Landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi var stofnuð 12. mars 2004 og er sjálfseignarstofnun sem miðar að því að kynna UNICEF og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, og styrkja hin margþættu verkefni UNICEF með fjáröflun.

Sýn
Að skapa börnum betri heim.

Markmið
Íslenska landsnefndin styður verkefni UNICEF um allan heim með fjáröflun og kynnir (á Íslandi) það öfluga starf sem UNICEF vinnur til að tryggja rétt allra barna.

Hlutverk á Íslandi 

Hlutverk Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi er fjórþætt. 

1. Afla fjárstuðnings við verkefni UNICEF.
Afla fjárstuðnings til verkefna UNICEF meðal almennings og einkafyrirtækja á Íslandi. 
Tryggja að styrktaraðilar fái upplýsingar um verkefni UNICEF.
2. Tryggja réttindi barna á Íslandi.
Kynna Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
Hvetja íslensk stjórnvöld til að hafa hagsmuni barna að leiðarljósi í starfi sínu innanlands og á alþjóðavettvangi. 
3. Vera fulltrúi UNICEF á Íslandi.
Kynna starf og markmið UNICEF. 
Styðja við og styrkja góð samskipti milli UNICEF, íslenskra stjórnvalda og einkafyrirtækja. 
Styðja íslenska einstaklinga, fyrirtæki, félög og opinberaaðila í málum er varða málefni barna og barnarétt, eins og við á.
4. Hvetja til virkrar þátttöku ungs fólks og barna í samfélaginu.
Virkja ungt fólk til þátttöku og áhrifa í samfélagi sínu og umhverfi.

Hlutverk á alþjóðavettvangi

Hlutverk Barnahjálparinnar á alþjóðlegum vettvangi er tvíþætt.

1. Vera fulltrúi Íslands innan UNICEF.
Kynna Ísland fyrir UNICEF
Starfa með íslenska ríkinu og fleiri aðilum til að auðvelda farveg Íslands í alþjóðasamstarfi.
2. Starfa með landsskrifstofum UNICEF og veita þeim fjárstuðning til verkefna fyrir börn.
Senda fjárstuðning
Afla upplýsinga um verkefni í starfslöndum UNICEF