126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Svanhildur Konráðsdóttir tók við stjórnarformennsku hjá UNICEF á Íslandi árið 2010, en þá hafði hún setið í stjórn í þrjú ár. Svanhildur er sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.
Karl Blöndal starfar sem aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins. Hann var meðlimur í fulltrúaráði UNICEF frá árinu 2004 en kom inn í stjórn árið 2006. Árið 2010 var hann kosinn varaformaður stjórnar UNICEF á Íslandi. Karl stundaði nám í stjórnmálafræði við University of Massachusetts í Boston og var fréttaritari Morgunblaðsins í Bandaríkjunum.
Bragi Guðbrandsson er framkvæmdastjóri Barnaverndarstofu. Hann kom inn í stjórn UNICEF á Íslandi árið 2009, en hafði áður verið landsnefndinni innan handar með upplýsingar er varðar stöðu barna á Íslandi.
Eiður Guðnason fyrrum ráðherra og sendiherra sat eitt ár í stjórn UNICEF Ísland 2006-2007 og gekk svo aftur til liðs við UNICEF árið 2008. Eiður hefur starfað á vettvangi fjölmiðla og stjórnmála, m.a. hefur hann setið í ýmsum alþjóðlegum nefndum og ráðum og verið sendiherra í Kína og Noregi. Á árunum 1991 til 1993 var hann umhverfisráðherra. Eiður er gjaldkeri stjórnar.
Guðrún Ögmundsdóttir er menntaður félagsráðgjafi, auk þess að hafa lokið námi í félagsfræði og fjölmiðlafræði. Hún gegndi þingmennsku um árabil og var áður yfirfélagsráðgjafi á kvennadeild Landspítalans og deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu svo eitthvað sé nefnt. Í dag situr hún í fagráði innanríkisráðuneytisins um kynferðislegt ofbeldi. Guðrún tók sæti í stjórn UNICEF á Íslandi árið 2011.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjölmiðlakona, hefur átt velgengi að fagna í íslensku sjónvarpi sem þáttastjórnandi Íslands í dag og Kastljóss, svo eitthvað sé nefnt. Hún hefur lengi látið sig málefni UNICEF varða og tók sæti í stjórn árið 2007. Hún var kosin trúnaðarmaður starfsmanna í stjórn árið 2010.
Jóna Hrönn Bolladóttir sóknarprestur í Garðasókn tók sæti í stjórn UNICEF á Íslandi árið 2010.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður hefur starfað með UNICEF á Íslandi nánast frá stofnun sem formaður fulltrúaráðs, en hún tók sæti í stjórn árið 2010.
Ragna Sigurðardóttir er fulltrúi ungmennaráðs UNICEF í stjórninni. Hún kom inn í stjórn árið 2011.