UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.
Þú ert hér:
UNICEF á Íslandi er ekki að leita að starfskrafti á þessarri stundu.
Um störf hjá UNICEF á Íslandi
Á skrifstofu UNICEF á Íslandi starfa ellefu einstaklingar í mismunandi starfshlutfalli. Ef þú hefur einhverjar fyrirspurnir varðandi starf eða sjálfboðastarf hér á landi þá endilega sendu póst á unicef hjá unicef.is.
UNICEF á Íslandi sér ekki um að senda fólk til sjálfboðastarfa eða launaðra starfa hjá UNICEF erlendis. Upplýsingar um friðargæsluverkefni á vegum íslenska ríkisins hjá UNICEF og Junior Professional Officers má nálgast hjá utanríkisráðuneytinu.
Störf hjá UNICEF samtökunum
Í dag starfa um 8.000 manns hjá UNICEF og eru störfin afar fjölbreytt. Allir hafa þessir einstaklingar sömu markmið - að skapa betri heim fyrir börn. Fyrir suma þýðir það að tala við 14 ára fyrrum barnahermann á meðan aðrir dreifa neyðargögnum, byggja klósett, panta bóluefni, tryggja fjármagn til HIV verkefna eða búa til viðbragðsáætlun við neyð í ákveðnu landi.
Þó svo fólk sé ekki allt staðsett á vettvangi eru öll störfin mikilvæg því að allir vinna að hinu sameiginlega markmiði.
Þú getur nálgast allar upplýsingar um alþjóðleg störf innan UNICEF á www.unicef.org.
Upplýsingar um alþjóðleg sjálfboðaliðastörf hjá UNICEF má nálgast á www.unv.org. Þess ber þó að geta að UNICEF nýtir að mestu sjálfboðaliða úr samfélögunum þar sem hjálparstarfið fer fram. Þannig er tryggt að þekking og reynsla haldist innan samfélaganna.