UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.
Þú ert hér:
Fjölmörg fyrirtæki og fjársterkir einstaklingar hafa gefið til verkefna UNICEF, aðallega til tvíhliða verkefna í Gíneu-Bissá og Síerra Leóne.
Ef um óeyrnamerkt fjárframlag er að ræða verður upphæðin að vera a.m.k. 4 milljónir króna. UNICEF gerir einnig þá kröfu að stórir styrktaraðilar gangist undir svokallað ,,screening process", en þá skoðar UNICEF fyrirtækið til að útiloka það að hugsanlegur styrktaraðili sé tengdur barnaþrælkun, spillingu eða öðru misferli. UNICEF vill ekki tengja sig slíkum fyrirtækjum og er mikið í mun að tryggja hið góða orðspor samtakanna.
Mikilvægt er að stórir styrktaraðilar fái að fylgjast með verkefninu og framvindu þess. Styrktaraðilar fá því framvinduskýrslur af verkefnunum á íslensku og lokaskýrslu þegar verkefninu lýkur. UNICEF á Íslandi starfar einnig með stórum styrktaraðilum ef koma þarf upplýsingum um stuðninginn til starfsmanna, viðskiptavina, fjölmiðla eða almennings.
UNICEF starfar eftir ströngustu reglur í fjármálum, eftirfylgni og verklagi. Stuðningsaðilar geta treyst því að fjármunum þeirra sé vel varið.
Nánari upplýsingar um styrktaraðila okkar er að finna hér.
Ef þú eða fyrirtæki þitt hefur áhuga á að styðja við sérstök verkefni á vegum UNICEF eða veita Barnahjálpinni óeyrnamerkt fé þá vinsamlegast hafið samband við Stefán Inga Stefánsson, framkvæmdastjóra UNICEF Ísland, í síma 552 6364 eða stefan hjá unicef.is.