English version -A +A

Neyðarsafnanir UNICEF

UNICEF á Íslandi safnar nú stuðningi við hjálpar- og uppbyggingarstarf UNICEF á Haítí.

Smelltu hér til að styrkja.©REUTERS/Eduardo Munoz

Jarðskjálfti sem mældist 7,0 stig á Richter-kvarðanum olli gríðarlegri eyðileggingu og mannskaða á Haítí þann 13. janúar 2010.

Gríðarleg eyðilegging blasir við hjálparstarfsfólki þar sem heimili, skólar og heilsugæslustöðvar hafa verið lögð í rúst. Neyðar- og uppbyggingarstarfið er stórvaxið og þörf er á miklum stuðningi alþjóðasamfélagsins til að standa undir því.

UNICEF á Íslandi hefur því ákveðið að hefja neyðarsöfnun til hjálpar- og uppbyggingarstarfs UNICEF á Haítí. UNICEF mun starfa á nær öllum sviðum neyðaraðstoðar, þ.e. heilsu, menntun, vernd, vatni og næringu.

Upplýsingar um fyrri neyðarsafnanir UNICEF á Íslandi má finna hér.