English version

Heimsforeldrar

Heimsforeldrar eru stærsti styrktaraðili UNICEF á Íslandi. Á síðustu árum hefur framlag heimsforeldra verið 60-70% af  heildartekjum landsnefndarinnar til hjálparstarfs. Árið 2009 voru framlög heimsforeldra 161 milljón króna eða 64% af heildartekjum það árið. 

Skrá mig sem heimsforeldri.

Lesa meira um heimsforeldra.

Heimsforeldrar eru einstaklingar sem borga mánaðarlega upphæð að eigin vali til UNICEF og styðja þannig við bágstödd börn um allan heim. Stöðugur stuðningur heimsforeldra er UNICEF mikilvægur því að með honum getur UNICEF brugðist við neyð og veitt langtímaþróunaraðstoð til þeirra sem minnst mega sín.