á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
UNICEF-verndarar munu hjálpa börnum í fátækustu löndum Vestur-Afríku að ganga í skóla. Að veita börnum tækifæri til menntunar er lykillinn að framtíð þeirra.
Hvers vegna að styðja við menntun barna?
Stuðningur eins fyrirtækis getur skipt sköpum - menntun í heilt ár kostar 1.700 krónur fyrir eitt barn
Það kostar ekki mikið að mennta barn í Vestur-Afríku. Um er að ræða 1.700 kr. fyrir heilt skólaár. Í þessari upphæð felst kostnaðurinn við að reisa skóla og kaupa bekki, borð, nauðsynlegan útbúnað fyrir kennslu sem og kennsluefni og skólagögn. Inn í tölunni er einnig kostnaður við að þjálfa kennara og setja upp vatns- og hreinlætisaðstöðu.
Ef um 400 lítil og meðalstór fyrirtæki taka sig saman og skrá sig sem UNICEF-verndarar geta 44.000 börn fengið tækifæri til að ganga í skóla, en það samsvarar fjölda barna í íslenskum grunnskólum.