yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?
Þú ert hér:
Stjórnlög unga fólksins
Vorið 2011 stóðu UNICEF á Íslandi, Reykjavíkurborg og umboðsmaður barna að verkefninu Stjórnlög unga fólksins.
Alþjóðadagur barna í fjölmiðlum
Í lok febrúar ársins 2009 skrifuðu UNICEF Ísland og Ríkisútvarpið undir samstarfsyfirlýsingu sem kvað á um að hvetja börn og ungmenni til þátttöku í samfélagsumræðunni og skapa vettvang fyrir skoðanir þeirra. Í þeim anda ýtti landsnefndin, í samstarfi við RÚV og Morgunblaðið, verkefninu Fréttaritaraþjálfun unga fólksins úr vör á Heimsdegi barna í fjölmiðlum þann 1. mars, en UNICEF um allan heim leggur áherslu á þátttöku barna og ungmenna í fjölmiðlum á þeim degi.
Þættir um Barnasáttmálann á Rás 1
Börn og ungmenni voru í forgrunni á báðum rásum Ríkisútvarpsins helgina 1.-3.mars 2009. Í framhaldi Fréttaritaraþjálfunarinnar ákváðu UNICEF og Rás 1 að sameinast um gerð útvarpsþáttaraðar ungmenna um Barnasáttmálann.
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins fór fram í mars og apríl 2009 í Reykjavík, á Ísafirði og á Egilsstöðum. Um var að ræða þriggja daga vinnusmiðju fyrir unga og áhugasama „fréttaritara“ úr 8., 9. og 10. bekk þar sem ungmennin fengu þjálfun í að koma hugmyndum og skoðunum sínum á framfæri í fjölmiðlum. Í vinnusmiðjunni unnu fréttaritararnir ungu útvarpspistla og blaðagreinar fyrir RÚV og Morgunblaðið, en sex útvarpspistlar og sex blaðagreinar eftir 45 þátttakendur voru birtar í þessum miðlum. Eftir vinnusmiðjuna töldu hundrað prósent þátttakenda hana hafa verið gagnlega.
Ungmennaráð
Í 12. grein Barnasáttmálans er kveðið á um að börn eigi að hafa áhrif á málefni sem þau varða. UNICEF á Íslandi leitast við að fara fram með góðu fordæmi og er ungmennaráð starfandi við landsnefndina sem hefur tækifæri til að hafa áhrif á stefnu hennar og ákvarðanir, ásamt því að framkvæma eigin verkefni.
Hlutverk ungmennaráðs er að vera til ráðgjafar fyrir UNICEF á Íslandi og gegnir einnig lykilhlutverki í að virkja börn og ungmenni til starfa í þágu réttinda barna hérlendis sem og erlendis.
Í ungmennaráði geta setið allt að 15 manns á aldrinum 13-18 ára (við inngöngu í ráðið).
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í starfi ungmennaráðs hafðu endilega samband við Bergstein Jónsson í síma 552 6306 eða sendu fyrirspurn á bergsteinn hjá unicef.is.