English version

Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun

Árið 2000 setti alþjóðasamfélagið sér markmið í þróun til ársins 2015. Þetta eru í dag kölluð Þúsaldarmarkmiðin. UNICEF tekur þátt í þessu alþjóðaátaki og einbeitir sér helst á þeim sviðum sem lúta að markmiðum 1 til 6. Markmiðin eru eftirfarandi:

1. Eyða fátækt og hungri

Lækka hlutfall þess fólks sem býr við örbirgð um helming á tímabilinu 1990 til 2015.

Lækka hlutfall þeirra sem búa við hungursneyð um helming á sama tímabili.

2. Öll börn njóti grunnskólamenntunar árið 2015

Tryggja að bæði stúlkur og drengir ljúki grunnskólanámi.

3. Vinna að jafnrétti kynjanna og styrkja frumkvæðisrétt kvenna

Eyða kynjamisrétti til skólagöngu í grunn- og framhaldsskólum fyrir árið 2005 og á öllum skólastigum fyrir 2015.

4. Lækka dánartíðni barna

Draga úr barnadauða um tvo þriðju á tímabilinu 1990 til 2015.

5. Vinna að bættu heilsufari kvenna

Lækka dánartíðni vegna barnsburðar (maternal mortality) um þrjá fjórðu á tímabilinu 1990 til 2015.

6. Berjast gegn alnæmi, malaríu og öðrum sjúkdómum sem ógna mannkyninu

Snúa við útbreiðslu eyðni, malaríu og annarra sjúkdóma fyrir árið 2015.

7. Vinna að sjálfbærri þróun

Framkvæma ríkjaáætlanir um sjálfbæra þróun fyrir árið 2005 og snúa þannig við neikvæðri þróun umhverfisáhrifa fyrir árið 2015.

Lækka um helming hlutfall þeirra sem ekki hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni á tímabilinu 1990 til 2015.

Stuðla að bættum lífsskilyrðum a.m.k. 100 milljón íbúa í fátækrahverfum stórborga.

8. Styrkja hnattræna samvinnu um þróun

Vinna frekar að opnu og sanngjörnu viðskipta- og fjármálakerfi sem byggir á skýrum reglum.

Taka á málefnum fátækustu þróunarlandanna, m.a. með því að leggja af innflutningsgjöld og kvóta á útflutningsvörur þeirra, leysa skuldabyrði landanna með lækkun skulda, og með auknum framlögum til opinberrar þróunaraðstoðar.

Taka tillit til sérstöðu landluktra landa og smárra eyþjóða.

Vinna með lyfjaiðnaðinum að því að veita fátækum þjóðum aðgang að mikilvægum lyfjum.
Vinna að því ásamt einkageiranum að veita þróunarlöndum aðgang að nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni.