Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

21.des.2011

Alþingi samþykkti í gær að veita 25 milljónum króna í vitundarvakningu gegn kynferðislegu ofbeldi á næsta ári. Meðal annars fá öll börn í öðrum og tíunda bekk fá fræðslu um kynferðislegt ofbeldi. UNICEF á Íslandi fagnar tíðindunum. Þetta er skref í rétta átt!

 

16.des.2011

Hljómsveitin White Signal söng sig inn í hjörtu landsmanna á degi rauða nefsins fyrir viku. Í gær gerðust síðan þau tíðindi að hljómsveitin vann hvorki meira né minna en jólalagakeppni Rásar 2 með laginu Jólanótt! Lagið varð til í kjölfar lagasmíðanna fyrir dag rauða nefsins. Hjartanlega til hamingju krakkar!

14.des.2011

Ný skýrsla frá rannsóknamiðstöð UNICEF sýnir að netið hefur aukið umfang kynferðisofbeldis gegn börnum og getuna til að valda skaða. Skýrslan var kynnt í dag og meðal þess sem í henni kemur fram er að börn þurfa vernd gegn því sem kallað er „þríhöfða þurs“.
 

13.des.2011

Óvenjuleg jólagjöf fyrir bágstödd börn hefur heldur betur slegið í gegn á aðventunni. Hér er um að ræða svokallaða gefandi gjafakörfu: Fulla af bóluefnum, námsgögnum, lyfjum og fleiru. Gefandinn fær fallegt gjafabréf en hjálpargögn eru send á vettvang. Gefðu jólagjöf sem er sönn gjöf!

10.des.2011

Landsmenn tóku afar vel í söfnunarátakið dag rauða nefsins sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, stóð fyrir í gær. Um 1650 manns hringdu inn á meðan á söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF stóð og vildu ýmist gerast heimsforeldrar eða hækka framlag sitt. Margir hafa auk þess skráð sig á heimasíðunni í dag.

10.des.2011

Myndbönd frá degi rauða nefsins eru á leið á netið! Nú þegar er myndband Páls Óskars við UNICEF-lagið "Megi það byrja með mér" farið út, sem og ný útgáfa af lagi Mugisons "Stingum af". Hjartnæmt myndband um valdeflingu stúlkna sömuleiðis!

 

 

 

 

 

 

 

9.des.2011

Dagur rauða nefsins er í dag og starfsmenn MP banka gæddu sér á flottri köku í morgun í tilefni af því! Boðið var upp á köku skreytta með Skjóðu, Skottu og Skrepp auk þess sem starfsmenn höfðu tækifæri til að láta gott af sér leiða í brandarakeppni þar sem bankinn styrkti UNICEF um moskítónet fyrir hvern brandara !

 

 

 

 

9.des.2011

Dagur rauða nefsins er í dag. Hápunkturinn er metnaðarfullur skemmti- og söfnunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 19.30 en þar kemur saman landslið skemmtikrafta, leikara og grínista.

8.des.2011

Hjá Samskipum átti starfsfólk saman notalega jólastund og setti upp rauð nef í tilefni af degi rauða nefsins. Fátt er skemmtilegra en að gleðjast saman og gleðja um leið aðra!

8.des.2011

Nú standa yfir æfingar á frábæru dansatriði sem enginn má missa af. Á degi rauða nefsins stígur björgunarsveitafólk á svið og dansar í þágu góðs málefnis! Fimm meðlimir Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar og þyrluflugmaður úr Landhelgisgæslunni æfðu sig í gær.