Vissir þú að...

á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.

Þú ert hér:  

3.ágúst.2011

Í ljósi versnandi neyðarástands á Horni Afríku vara Sameinuðu þjóðirnar við því að á næstu tveimur mánuðum gæti ástandið um gjörvalla Suður-Sómalíu orðið að hungursneyð. Ótal mannslíf eru í húfi; engu að síður eru viðbrögð alþjóðasamfélagsins ennþá hæg.
 

29.jul.2011

„Þetta er erfitt.“ Þannig lýsir starfsmaður UNICEF sem staddur er í Dadaab-flóttamannabúðunum í Keníu upplifun sinni. Frásögn hans af aðstæðum í búðunum er nöturleg en hann segir starfsfólk UNICEF engu að síður halda í jákvæðnina með því að einbeita sér að því sem gera þarf til að hjálpa eins mörgum börnum og mögulegt er.

27.jul.2011

UNICEF hefur dreift 1300 tonnum af hjálpargögnum í suðurhluta Sómalíu það sem af er mánuðinum. Þar á meðal eru 653 tonn af svokallaðri UNIMIX-blöndu sem inniheldur meðal annars maís, mjólkurduft, sojamjöl, vítamín og steinefni. Úr blöndunni er búinn til næringarríkur grautur fyrir börn.

27.jul.2011

Hátt í 7000 Íslendingar hafa stutt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi. Svæðisstjóri UNICEF á þurrkasvæðinu er þakklátur Íslendingum. Fyrir framlagið er hægt að útvega sem samsvarar 300.000 skömmtum af fæðu fyrir vannærð börn. Hvert framlag skiptir máli. Takk fyrir stuðninginn!

25.jul.2011

Tegla Loroupe frá Keníu er margfaldur heimsmethafi í maraþoni, og hálfmaraþoni. Hún er jafnframt góðgerðarsendiherra hjá UNICEF. Tegla er á Íslandi vegna friðarhlaupsins og heimsótti okkur á skrifstofuna í dag. Hún er frá norðvesturhluta Keníu - þar sem þurrkarnir miklu hafa valdið verulegum erfiðleikum.

25.jul.2011

Fjöldi barna í bráðri lífshættu vegna alvarlegrar vannæringar eykst enn í þeim ríkjum Austur-Afríku þar sem neyðarástandi hefur verið lýst yfir. Fjöldi barnanna er nú kominn yfir 700.000 en var áður hálf milljón. Alls eru 2,23 milljónir barna vannærðar. UNICEF hefur þungar áhyggjur af þróuninni.

22.jul.2011

Neyðin í Sómalíu, Keníu, Eþíópíu og Djíbúti heldur áfram að vekja sterk viðbrögð á Íslandi. Sífellt átakanlegri fréttir og myndir berast nú af neyðarsvæðunum og heimsbyggðin gerir sér æ betur grein fyrir hvers konar hörmungar eiga sér stað í þessum löndum.

20.jul.2011

Hvergi í heiminum er vannæring nú meiri en í Sómalíu. Í morgun lýstu Sameinuðu þjóðirnar formlega yfir hungursneyð í tveimur héruðum landsins: Í Bakool og í Neðri-Shabelle. Neyðin bitnar mest á börnum. Þriðja hvert barn í Sómalíu er  vannært.

 

19.jul.2011

Í morgun tók flutningavél frá birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn á loft. Ferðinni er heitið til Keníu og eru 76 tonn af hjálpargögnum í sendingunni. Búist er við vélin lendi í höfuðborginni Nairobi skömmu eftir miðnætti að staðartíma.

18.jul.2011

Úti á landi, í litlum þorpum og á meðal hirðingja í Keníu eru afleiðingar þurrkanna miklu hvað alvarlegastar. Um helgina fór framkvæmdastjóri UNICEF á heimsvísu til Turkana-héraðs þar sem vannæring hefur stóraukist: Hún er nú komin upp í 37%. Við vorum að fá sendar sláandi ljósmyndir úr ferðinni.