Vissir þú að...

á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.

Þú ert hér:  

15.jul.2011

Enn versnar ástandið í Austur-Afríku eftir mestu þurrka í yfir hálfa öld. UNICEF hefur þungar áhyggjur af stöðunni og hefur aukið enn við mannúðaraðgerðir sínar á svæðinu. Hálf milljón barna er lífshættulega vannærð og í þörf fyrir tafarlausa aðstoð. Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi hefur gengið vel.

13.jul.2011

Íslenskir fjölmiðlar hafa á undanförnum dögum fjallað um neyðina í Austur-Afríku. Í máli þeirra hefur komið skýrt fram að börn eru í sérstakri hættu – þau líða hungur og vannæringu og hættan á farsóttum eykst frá degi til dags. Fréttirnar hafa snert djúpt við fjölmörgum Íslendingum sem hafa styrkt hjálparstarf UNICEF ötullega.

11.jul.2011

UNICEF á Íslandi kallar eftir stuðningi almennings vegna neyðaraðgerða í Austur-Afríku. Mestu þurrkar á svæðinu í yfir hálfa öld, ásamt hækkandi matvælaverði, ógna lífi og heilsu tíu milljóna manna. Þar af þjást yfir tvær milljónir ungra barna af vannæringu. Um 500 þúsund þeirra eru nú þegar talin lífshættulega vannærð.

8.jul.2011

Á morgun mun stærsta ríki Afríku skiptast upp og nýtt ríki líta formlega dagsins ljós: Suður-Súdan. Hið nýja ríkið verður eitt það fátækasta í heimi og jafnframt sá staður þar sem einna áhættusamast verður fyrir börn að fæðast. UNICEF sinnir afar umfangsmiklu hjálparstarfi í Suður-Súdan.

8.jul.2011

UNICEF hefur lýst yfir neyðarástandi í Austur-Afríku, nánar tiltekið í Sómalíu og hluta af Eþíópíu og norðurhluta Keníu. Samtökin telja að ástandið ógni lífi og heilsu um tíu milljóna manna, þar af eru um tvær milljónir barna undir fimm ára aldri. UNICEF á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun til styrktar þessum börnum.

5.jul.2011

Árið 2010 sendi UNICEF vel yfir 2 milljarða skammta af bóluefni á vettvang – og náði þar með til 58% barna í heimi. Þetta kemur fram í nýrri birgðaskýrslu UNICEF fyrir 2010. Þar kemur einnig fram að nærri 400 milljónum taflna með ormalyfi var dreift. Þetta er einungis hægt með góðri skipulagningu!

30.jun.2011

UNICEF hefur miklar áhyggjur af matarskorti og flóttamannastraumi í Austur-Afríku. Ástandið má rekja til skelfilegrar blöndu af þurrkum, langvarandi og stigvaxandi átökum og hækkandi matvælaverði. Samtökin telja að ástandið ógni lífi og heilsu milljóna barna og kvenna og hvetur stjórnvöld og styrktaraðila til að bregðast við með hraði.

29.jun.2011

Lífið er erfitt fyrir hina 16 ára gömlu Clodine. Hún er barnshafandi, gengin sex mánuði, og smituð af HIV. Hún býr ásamt gamalli frænku sinni í tjaldi með moldargólfi í tjaldbúðum fyrir heimilislaust fólk í höfuðborg Haítí, Port-au-Prince.

27.jun.2011

Undanfarin ár hafa þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu getað fengið vini og vandamenn til að heita á sig til styrktar góðgerðarfélagi að eigin vali. Þessi möguleiki hefur aukið skemmtanagildi hlaupsins. Við hvetjum sem flesta til að hlaupa fyrir UNICEF og leggja starfi okkar þannig lið.

20.jun.2011

Þúsundir barna í Afríku sæta ofbeldi og misnotkun á hverjum einasta degi. Ástandið er sérstaklega áþreifanleg fyrir börn sem búa og starfa á götunni. Í tilefni af degi afríska barnsins þann 16. júní hvatti UNCEF stjórnvöld til að tryggja götubörnum aukna vernd.