Vissir þú að...

UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.

Þú ert hér:  

17.des.2012

Námsgögn, moskítónet og vatnshreinsandi töflur eru dæmi um óvenjulegar en jafnframt  frumlegar jólagjafir. Þær eiga það sameiginlegt að vera sannar gjafir UNICEF, bæta líf barna um heim allan og koma alltaf að góðum notum.    

13.des.2012

Tæplega þriðji hver Íslendingur fær jólagjöf sem hann vill ekki eða nýtist ekki. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir UNICEF á dögunum. Þar kemur einnig fram að 88% þeirra vilja frekar að andvirði gjafa sem ekki nýtast renni til kaupa á hjálpargögnum fyrir bágstödd börn.

8.des.2012

Dagur rauða nefsins hjá UNICEF á Íslandi náði hámarki í gærkvöldi með fjögurra klukkustunda skemmti- og söfnunarþætti. Meginmarkmið átaksins var að gleðja landsmenn og bjóða þeim að gerast heimsforeldrar UNICEF. Kallinu var afar vel svarað en um 1.500 manns slógust í hópinn.

7.des.2012

Í dag heldur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, upp á dag rauða nefsins. Hápunktur dagsins er metnaðarfullur skemmti- og söfnunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld og er streymdur samtímis á Vísi. Hér er um langstærsta viðburð ársins að ræða hjá UNICEF á Íslandi og sem fyrr er markmiðið að nota grín og spé til að safna fé og bjóða fólki á Íslandi að gerast heimsforeldrar. 

4.des.2012

Það má segja að viðstaddir hafi séð rautt þegar skrifað var undir samsstarfssamning UNICEF á Íslandi og  lyfjafyrirtækisins Alvogen. Í tilefni þess að nú styttist óðum í dag rauða nefsins brá starfsfólk Alvogen á leik og skartaði rauðu nefi við undirritunina.  

30.nov.2012

Nú eru aðeins 8 dagar í hinn eina sanna dag rauða nefsins og undirbúningur gengur vonum framar. Dagskrá skemmtiþáttarins er að taka á sig endanlega mynd, lagið „Öll í kór“ með FM Belfast og félögum ómar á öldum ljósvakans og út um allt setur fólk upp rautt nef og skemmtir sér og öðrum.

27.nov.2012

Hefð hefur skapast fyrir því að kynna nýtt lag í aðdraganda dags rauða nefsins hjá UNICEF. Lagið í ár er samið af hljómsveitinni FM Belfast og ber heitið Öll í kór. Dagur rauða nefsins er 7. desember en lagið sjálft fer í spilun í dag. 

23.nov.2012

Dagur rauða nefsins er árviss viðburður hjá UNICEF á Íslandi. Hann ber í ár upp á 7. desember en nú í dag hefst hin árlega sala á rauðum nefjum UNICEF. Nefin í fyrra, þau Skotta, Skreppur og Skjóða, nutu gríðarlegra vinsælda hjá landsmönnum en nefin í ár koma í litlum glösum sem innihalda ráðlagðan dagskammt fyrir þau sem vilja bæta heiminn! 

19.nov.2012

 Að senda UNICEF-jólakort til vina og vandamanna er hefð á mörgum  heimilum enda eiga kortin sér yfir hálfrar aldra sögu á Íslandi. Útsölustaðir  hafa aldrei verið fleiri en í ár en jólakortin má nálgast á pósthúsum og í  verslunum Pennans/Eymundssonar, Bókabúð Máls og menningar, Iðu og  Bóksölu stúdenta.

19.nov.2012

Andrea Benediktsdóttir er harðdugleg ung kona. Ekki nóg með að vera í fullu námi í Háskóla Íslands í lyfjafræði með helgarvinnu í veitingabransanum, þá vaknar hún líka kl. 5 til þess að bera út Moggann. Blaðberalaunin ákvað hún að gefa til UNICEF.