Vissir þú að...

UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.

Þú ert hér:  

28.ágúst.2012

Katrín Georgsdóttir vinnur á Hótel Sögu og heillaði á dögunum erlend hjón á hótelinu upp úr skónum. Hún var þeim innan handar og þau voru henni svo þakklát fyrir aðstoð hennar að þau buðust til að styrkja hjálparsamtök að hennar vali. Katrín valdi UNICEF og fyrir það erum við innilega þakklát.

14.ágúst.2012

Fiðluleikarinn ungi, Ágústa Dómhildur Karlsdóttir, ætlar að endurtaka frábært framtak sitt frá í fyrra og leika undurfagra tóna til styrktar UNICEF á menningarnótt á laugardaginn. Milli klukkan 13-17 mun Ágústa „böska“ fyrir utan Eymundsson á Skólavörðustíg, þ.e. spila og safna framlögum í fiðlukassann sinn.

20.jul.2012

Í dag afhentu Jóhanna Kristjónsdóttir og Ragný Þóra Guðjohnssen UNICEF alls þrjár milljónir króna fyrir hönd Fatímu-sjóðsins. Stuðningnum verður varið til heilsugæslu- og næringarverkefna UNICEF í Jemen. UNICEF fagnar þessum stuðningi mjög og þakkar Fatímusjóðnum kærlega fyrir.

17.jul.2012

Yfir 110 þúsund manns hafa flúið frá Sýrlandi og yfir til Jórdaníu, Líbanons, Tyrklands og Írak, þar sem þau fá hjálp. Helmingurinn af þeim eru börn og ungmenni. UNICEF í Jórdaníu hefur komið á fót svokölluðum „barnvænum svæðum" á þremur stöðum. Auk þess dreifir UNICEF þessa stundina 3 þúsund hreinlætispökkum fyrir ungabörn en þá hefur alls 9 þúsund pökkum verið dreift.

12.jul.2012

Nýverið fékk UNICEF 236.843 krónur í styrk vegna sölu tónlistar og auglýsinga á tónlistarvefnum Gogoyoko.com. Tónlistarfólki er gefinn kostur á að styrkja góðgerðarsamtök þegar þeir hlaða inn efni. Einnig rennur 10% af auglýsingasölu á vefnum til góðgerðarmála og er því skipt á milli þeirra fimm góðgerðarsamtaka sem Gogoyoko er í samstarfi við.

9.jul.2012

Matthildur Ásbergsdóttir, Magnús Kristinsson, Sara Xiao Reykdal og Kristján Orri Hugason komu færandi hendi á skrifstofu UNICEF með 10.605 krónur sem þau höfðu safnað með því að halda flóamarkað. Þau fundu hluti heima fyrir og komu sér fyrir í Háaleiti þar sem þau seldu gestum og gangandi. Ágóðinn rann til verkefna UNICEF fyrir börn um allan heim.

5.jul.2012

Þær Bríet Edel Bjarkadóttir, María Björt Hjálmarsdóttir og Stefanný Ósk Stefánsdóttir söfnuðu á dögunum yfir 30 þúsund krónum til styrktar bágstöddum börnum um allan heim með mjög svo umhverfisvænum hætti. Fyrst gengu þær hús úr húsi og söfnuðu flöskum og dósum. Því næst hjóluðu þær með fulla poka í endurvinnsluna.

3.jul.2012

UNICEF stóð fyrir símaleik í tengslum við Evrópumótið í fótbolta þar sem almenningi gafst kostur á að vinna áritaða treyju frá liðsmönnum Fótboltafélagsins Barselóna. Alls bárust 557 smáskilaboð og safnaðist 835.500 krónur fyrir treyjuna. UNICEF á Íslandi þakkar öllum þeim sem tóku þátt.

27.jun.2012

UNICEF býður fólki að taka þátt í skemmtilegum símaleik í tengslum við Evrópumótið í fótbolta. Árituð treyja frá Fótboltafélagi Barselóna dreginn út á sunnudaginn. Einfalt er að taka þátt með því að senda „unicef“ í númerið 1900. Hvert smáskilaboð kostar 1.500 krónur.

26.jun.2012

Nýverið gaf Kvenfélag Gnúpverja UNICEF styrk að upphæð 20 þúsund krónum. Þær safna pening með sjálfboðavinnu og deila söfnunarfé til margra góðgerðarmála. Þær hafa áður gefið UNICEF styrki og erum við þeim hjartanlega þakklát fyrir stuðninginn og óeigingjarnt starf í þágu góðra málefna.