Vissir þú að...

hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!

Þú ert hér:  

Fréttir í tímaröð

 

Þau flúðu til Íraks

21.maí.2013

Yfir 140.000 flóttamenn frá Sýrlandi hafa flúið átökin í heimalandinu og hrakist yfir landamærin til Írak. Margir hafast við í úthverfum borga en stærstu flóttamannabúðirnar eru Domiz búðirnar í norður Írak. Þar hafast við yfir 40.000 manns í aðstöðu sem ætlað er að sjá fyrir þörfum helmingi færra fólks. 


 


UNICEF á Íslandi hlaut fjölmiðlaverðlaun landsnefnda

14.maí.2013

UNICEF á Íslandi hlaut í síðustu viku fjölmiðlaverðlaun landsnefnda UNICEF. Verðlaunin voru veitt fyrir kynningarátak UNICEF á Íslandi í tengslum við neyðarsöfnun fyrir Sahel-svæðið í Vestur-Afríku. Eitt ár er liðið frá því að UNICEF hringdi viðvörunarbjöllum um allan heim vegna hættuástands í átta ríkjum á Sahel-svæðinu. 


 


Hver er besta gjöfin sem móðir getur hugsað sér?

10.maí.2013

Mislingar eru bráðsmitandi veirusýking sem ræðst á ónæmiskerfið og gerir börn berskjölduð gagnvart lífshættulegum sýkingum. Mæðradagurinn er á sunnudag og fyrir þau sem ætla að gefa mæðrum sínum gjöf bendum við á bóluefni gegn mislingum! Gæti besta gjöfin til móður þinnar verið að gefa öðrum mæðrum risavaxna gjöf?

 


 


Utanríkisráðuneytið veitir nærri 11 milljónum til UNICEF vegna Sýrlands

29.apr.2013

Utanríkisráðuneytið hefur veitt hátt 11 milljónum króna til hjálparstarfs UNICEF í Sýrlandi og nágrannríkjunum. Framlagið kemur til viðbótar framlagi sem tilkynnt var umfyrr á árinu. UNICEF er með gríðarlega umfangsmikið starf á svæðinu og stuðningurinn kemur í afar góðar þarfir. Ástandið er grafalvarlegt og ótal barnslíf í húfi. 


 


Sannar sumargjafir á alþjóðlega malaríudeginum

24.apr.2013

Sumarið nálgast óðum! Á morgun er hins vegar ekki einungis sumardagurinn fyrsti hér á Íslandi heldur einnig alþjóðlegi malaríudagurinn. Malaría er banvænn sjúkdómur sem smitast með moskítóflugum og herjar á milljónir manna í yfir 100 löndum – ekki síst börn. Af þessu tilefni hvetjum við fólk til að gefa moskítónet sem sumargjafir!  


 


Óvenjuleg yfirlýsing vegna Sýrlands: Ákall til leiðtoga

16.apr.2013

Í ákalli sem framkvæmdastjórar allra helstu stofnana Sameinuðu þjóðanna sendu frá sér í morgun eru stríðandi fylkingar í Sýrlandi og pólitískir leiðtogar ríkja sem geta haft áhrif á stöðu mála sárbeðnir um að knýja fram pólitíska lausn á "hinum hrottafengnu átökum". 

 


 


Sýrland: "Nóg komið" - textinn allur á ensku

16.apr.2013

Framkvæmdastjórar UNICEF og annarra stofnana Sameinuðu þjóðanna sendu í morgun frá sér óvenjulegt ákall til allra þeirra pólitísku leiðtoga og aðila sem tengjast stríðinu í Sýrlandi, þar sem þeir eru beðnir að nota áhrif sín til að "bjarga fólki í Sýrlandi og bjarga svæðinu öllu frá stórkostlegum hörmungum". Textinn í heild sinni er hér.

 

 


 


Ný áætlun UNICEF og WHO gæti bjargað 2 milljónum barnslífa á ári

12.apr.2013

UNICEF kynnir í dag í samstarfi við WHO nýja alþjóðlega aðgerðaráætlun gegn lungnabólgu og niðurgangspestum. Áætlunin felur í sér stórsókn gegn tveimur helstu dánarorsökum ungra barna í heiminum. 

 


 


Velferð barna ein sú mesta á Íslandi

10.apr.2013

Óvíða mælist velferð barna meiri en hér á landi. Samkvæmt alþjóðlegri skýrslu UNICEF sem kemur út í dag er Ísland í þriðja sæti hvað velferð barna varðar, á eftir Hollandi og Noregi. Skýrslan er hluti af Report-Card rannsóknarritröðinni sem mælir velferð barna í efnameiri ríkjum heims.  


 


Velferð barna á Íslandi og í efnameiri ríkjum heims

10.apr.2013

Börn á Íslandi meta lífsánægju sína næstmesta af börnum í 29 ríkjum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF um velferð barna í efnameiri ríkjum heims. Í skýrslunni kemur einnig fram að Ísland er í þriðja sæti hvað velferð barna varðar, á eftir Hollandi og Noregi. Ekki mælast sterk tengsl á milli velferðar barna og vergrar þjóðarframleiðslu á mann.