Tölulegar upplýsingar
- Yfir 26 þúsund börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir.
- Yfir 20 milljónir þeirra barna sem fæðast árlega eru undir eðlilegri meðalþyngd.
- Yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar eða 5,6 milljónir (árið 2004).
- Á hverju ári fæðast nærri 50 milljón börn sem aldrei eru skráð/fá fæðingarvottorð. Stærsti hluti óskráðra barna býr í Suður-Asíu.
- Talið er að 218 milljónir barna starfi við hættulegar aðstæður. Af þeim eru 126 milljónir sem starfa í lífshættulegum störfum.
- 5,7 milljónir barna eru þvinguð til vinnu.
- Samkvæmt nýjustu tölum eru um 1,2 milljónir barna seld um allan heim á hverju ári.
- 133 milljónir barna um allan heim hafa misst einn eða báða foreldra.
- Tölur sýna að 20% kvenna hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun sem börn og 5-10% karla.
- 100-110 milljón börn ganga ekki í skóla - meirihluti þeirra eru stúlkur.
- 75% þeirra barna sem ganga ekki í grunnskóla eiga mæður sem fóru aldrei í skóla.
- 781 milljón manna um allan heim kunna ekki að lesa - 64% þeirra eru konur.
- 3% dauðsfalla barna undir 5 ára má rekja til HIV/alnæmis.
- Árið 2006 voru nærri 40 milljónir manna með HIV-veiruna - 2,3 milljónir eru börn undir 15 ára aldri.
- Langstærsti hluti HIV smitaðra býr í sunnanverðri Afríku eða 2 milljónir þeirra barna sem eru 15 ára og yngri.
- Börn (undir 15 ára) og ungt fólk (15-24 ára) voru helmingur nýsmitaðra á árinu 2006.
- Aðeins 69% nýfæddra barna í þróunarlöndunum eru bólusett gegn stífkrampa.
- Hægt væri að bjarga 10 milljónum barna með bólusetningum fyrir 1 milljarð á ári frá 2006 til 2015.
- Síðan alþjóðlega bólusetningarátakið hófst árið 1974 hefur tekist að hækka hlutfall bólusettra barna gegn sex helstu barnasjúkdómunum - diphtheria, measles, pertussis, polio, tetanus and tuberculosis - frá minna en 5% til næstum 80% árið 2004.
- Þrátt fyrir mikinn árangur þurftu um 27 milljón börn bólusetningu árið 2003 og 40 milljónir þungaðra kvenna.
- 1 milljón manna deyja árlega af völdum malaríu.
- Malaría er enn til víðsvegar um heiminn og aðallega í Afríku. Yfir 3,2 milljarðar manna eru í hættu á að fá sjúkdóminn/sníkjudýrið.
- Malaría er orsök 20% dauðsfalla barna undir 5 ára í Afríku.
- Í Afríku er um 40% af heilsugæsluútgjöldum varið til verkefna tengt malaríu.
- Dregið hefur úr dauðsföllum vegna mislinga um 68% síðan árið 2000.
- 68% barna í þróunarlöndunum fengu A-vítamín árið 2004.
- Tilfelli lömunarveiki árið 1988 voru 350.000 - tilfelli árið 2006 voru 2001.