Umboðsmaður barna
Samkvæmt vefsíðu umboðsmanns barna, www.barn.is, vinnur umboðsmaður barna að því að bæta hag barna og unglinga og gætir þess að tekið sé tillit til réttinda barna, þarfa og hagsmuna á öllum sviðum samfélagsins. Umboðsmanni barna er ekki ætlað að skipta sér af málum einstakra barna. Hins vegar leiðbeinir umboðsmaður, eða starfsfólk hans, öllum sem til skrifstofunnar leita um hvert hægt er að snúa sér til að fá aðstoð við að leysa sín mál.
Umboðsmaður barna er Margrét María Sigurðardóttir, lögfræðingur. Hægt er að hafa samband við umboðsmann á ub@barn.is, eða í síma 552-8999.