UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.
Þú ert hér:
Tveimur árum eftir að jarðskjálftinn á Haítí lagði stóran hluta landsins í rúst er margvíslegar góðar fréttir að finna í landinu. UNICEF kynnti af því tilefni skýrsluna Children of Haiti: Two years after.
Í Fréttablaðinu og á Vísi var fjallað um málið og sagt frá starfi UNICEF. Upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi benti meðal annars á að starfið væri meðal annars fjármagnað með framlögum heimsforeldra á Íslandi og væri afar umfangsmikið.
Hún sagði ennfremur frá einkennilegum andstæðum á Haítí á milli höfuðborgar í sárum eftir skjálftann og iðandi mannlífs.
Í sjö-fréttum RÚV var viðtal þar sem bent var á að UNICEF hefði lagt mikla áherslu á að vinna gegn mansali á börnum á Haítí og að í dag væri mun erfiðara en áður að fara ólöglega með börn úr landi en fyrir skjálftann.
Í viðtali í Speglinum ræddi Jón Guðni Kristjánsson enn fremur við Sigríði um Haítí, meðal annars um það hvernig heimsforeldrar gera UNICEF kleift að vera á staðnum eftir að kastljós fjölmiðlanna er farið annað.
Í leiðara í Morgunblaðinu daginn eftir var meðal annars bent á að almenningur hér á landi hefði verið boðinn og búnn til að leggja fé til samtaka á borð við UNICEF til að styðja björgunarstarfið á Haítí. Árangurinn sýndi að sá stuðningur skipti máli.
Í myndaseríu á Vísi mátti meðal annars finna ljósmyndir af börnum sem nýverið fengu aðstoð frá UNICEF til að fara í skóla. Það var Arnar Þór Þórisson sem tók myndirnar fallegu.
Í sömu frétt mátti enn fremur sjá hjartnæmt myndskeið af bólusetningarmiðstöð á Haítí, sem leikkonan Halldóra Geirharðsdóttir heimsótti.
Fleiri fréttir um UNICEF og Haítí er að finna hér: