Ungmennaráð UNICEF Ísland
Í ungmennaráði UNICEF Ísland eru 9 manns á aldrinum 14-20 ára sem vinna náið með starfsfólki UNICEF á Íslandi. Þau hittast einu sinni í viku (á þriðjudögum) og eru með ýmis verkefni í gangi hverju sinni. Auk þess eru þau ráðgefandi fyrir starfsfólk og starfsemi samtakanna á Íslandi.
UNICEF leitast ávalt við að hafa réttindi barna að leiðarljósi í starfi sínu. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður m.a. á um að börn eigi rétt á að láta skoðanir sínar í ljós og að á þau sé hlustað. Ungmennaráðið spilar þannig stóran þátt í starfi UNICEF á Íslandi.