English version

Ungmennaráð

Í ungmennaráði UNICEF á Íslandi eru nú um 10 manns á aldrinum 14-20 ára sem vinna náið með starfsfólki UNICEF á Íslandi. Þau hittast einu sinni í viku (nema kannski á sumrin) og eru með ýmis verkefni í gangi hverju sinni.

UNICEF leitast ávalt við að hafa réttindi barna að leiðarljósi í starfi sínu. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður m.a. á um að börn eigi rétt á að láta skoðanir sínar í ljós og að á þau sé hlustað. Ungmennaráðið spilar þannig stóran þátt í starfi UNICEF á Íslandi.

Hlutverk ungmennaráðs er að vera til ráðgjafar fyrir UNICEF á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í að virkja börn og ungmenni til starfa í þágu réttinda barna hérlendis sem og erlendis.

Skoða hlutverk og starfsreglur ungmennaráðsins (pdf).

Í ungmennaráði geta setið allt að 15 manns á aldrinum 13-18 ára (við inngöngu í ráðið).

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í starfi ungmennaráðs hafðu endilega samband við Bergstein Jónsson í síma 552 6306 eða sendu fyrirspurn á bergsteinn hjá unicef.is.