Þú ert hér:  

Sækja um í ungmennaráði UNICEF Ísland

Ef þú ert á aldrinum 13-18 ára getur þú sótt um inngöngu í ungmennaráð UNICEF á Íslandi. Miðast er við að hafa 15 ungmenni í ráðinu hverju sinni.

Ungmennaráð heldur vikulega fundi seinni part þriðjudaga í skrifstofuhúsnæði UNICEF að Laugavegi 42.

Ef þú hefur áhuga á að vera í ungmennaráði UNICEF getur þú sent tölvupóst á bergsteinn@unicef.is. Þú þarft að gefa upp eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn
  • Kennitala
  • Skóli, bekkur
  • Áhugamál?
  • Hvers vegna viltu vera með í ungmennaráði UNICEF?

Við hvetjum þig til að kynna þér starfsreglur ungmennaráðs áður en þú sækir um.

Bergsteinn Jónsson, verkefnastjóri skóla- og ungmennastarfs, svarar öllum fyrirspurnum og tekur við umsóknum. Ekki hika við að hafa samband við hann ef þig vantar nánari upplýsingar. Þú getur sent Bergsteini tölvupóst á bergsteinn@unicef.is eða hringt í síma 552 6306.