á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Ungmennaráð UNICEF á Íslandi hefur staðið fyrir gríðarlega töff verkefnum á undanförnum árum. M.a. fengið KronKron til að hanna boli sem kallast Bestu bolir í heimi og haldið tónleika með ungmennaráði ÍTR í mið- og vesturbæ.
Bestu bolir í heimi
Tvær gerðir eru til af Bestu bolunum (þú þekkir þá kannski sem loftbelgja-bolirnir og völundarhúsa-bolirnir). Stykkið kostar litlar 2500 krónur og fást þeir í mörgum litum og stærðum hjá UNICEF á Íslandi að Laugavegi 42. Þú getur líka sent póst á bergsteinn hjá unicef.is ef þú hefur áhuga. Allur ágóði fer að sjálfsögðu til hjálpar börnum í neyð.
Grípum til aðgerða - tónleikar
Í september 2007 voru haldnir stórtónleikar ungmennaráðs ÍTR í mið- og vesturbæ og UNICEF á Íslandi í Listasafni Reykjavíkur. Yfirskrift tónleikanna var Grípum til aðgerða! Fjöldi hljómsveita lagði málefninu lið og var tónleikunum útvarpað beint á Rás 2. Ágóði rann til UNICEF. Fram komu: Jeff Who, Reykjavík, Skakkamanage, Grrrrr, Retro Stefson og Soundspell.
Myndir segja meira en mörg orð! (tónleikar og bolir)