á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Í yfir 60 ár hefur Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna eða UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í 156 löndum og svæðum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára. UNICEF útvegar flestar bólusetningar til barna í þróunarlöndunum, styður heilsugæslu- og næringarverkefni fyrir börn, veitir börnum menntun og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og HIV/alnæmi. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.