UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.
Þú ert hér:
UNICEF-hreyfingin er skemmtilegt verkefni fyrir allan skólann þar sem nemendur hljóta fræðslu um jafnaldra sína í öðrum heimshlutum og safna fé fyrir þurfandi börn um allan heim með því að stunda holla hreyfingu.
UNICEF-hreyfingin á að vera auðveldur farvegur fyrir skóla til að nota krafta sína í þágu verðugs málstaðar. Skólinn ykkar getur skipulagt UNICEF-hreyfinguna hvenær sem er árið um kring. Hentugt er að skipuleggja viðburðinn sem íþróttadag, eða flétta hann inn í þemadaga. Með verkefnisgögnunum fylgir fræðsluefni um líf barna í þróunarlöndum, gleði þeirra og sorgir. Nemendur fá því upplýsingar um bágar aðstæður jafnaldra sinna í öðrum löndum og geta tekið afstöðu til þeirra. Til að hjálpa nemendum að fá útrás fyrir skoðanir sínar á kröppum kjörum þessara jafnaldra sinna, skipuleggur skólinn íþróttadag þar sem nemendum gefst kostur á að leggja sitt af mörkum til að bæta líf þurfandi barna.
Takmark þeirra sem taka þátt í íþróttadeginum er að safna eins mörgum límmiðum og þeir geta í svokallað „apakver“ með því að hreyfa sig (ganga, hlaupa, valhoppa, o.s.frv.). Skólinn ákveður vegalengdina sem farin er, en miðað er við að börnin fái einn límmiða fyrir u.þ.b. hvern kílómetra sem þau hreyfa sig.
Fyrir viðburðinn safna nemendur styrktaraðilum úr hópi sinna nánustu sem heita ákveðinni upphæð á nemandann fyrir hverja vegalengd sem hann/hún hreyfir sig. ATH! Nemendur geta að sjálfsögðu tekið þátt án þess að nokkur heiti á þá. Markmiðið er að sem flestir taki þátt!
Skólinn fær sent sér að kostnaðarlausu:
Fyrir hvern nemanda:
• Apakver.
• Blað með límmiðum.
• Áheitaumslag.
Fyrir skólann:
• Kynningarbækling um UNICEF-hreyfinguna.
• Framkvæmdarbækling fyrir UNICEF-hreyfinguna.
• Tillögu að upplýsingabréfi um verkefnið til foreldra og forráðamanna.
• 10 vegvísa til að merkja leiðina.
• DVD-disk með 2 fræðslumyndböndum um líf barna í löndum þar sem UNICEF starfar og 2 glærufyrirlestra um starfsemi UNICEF í löndunum.
• Tillögu að þakkarbréfi fyrir þátttöku aðstandenda/styrkveitenda.
Tilkynning um þátttöku ykkar skóla
Tilkynnið nafn skóla og nemendafjölda.
Sendið í síðasta lagi þremur vikum fyrir viðburðinn.
• Í tölvupósti á hreyfingin@unicef.is.
• Á rafrænu skráningarformi
• Í síma 552 6300.