UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.
Þú ert hér:
Í 64 ár hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í 156 löndum og svæðum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára.
UNICEF útvegar flestar bólusetningar til barna, styður heilsugæsluverkefni, veitir börnum menntun og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og HIV/alnæmi.
Barnasáttmáli S.þ. hefur verið leiðarljósið í starfi UNICEF síðan hann var samþykktur á allsherjarþinginu árið 1989. UNICEF starfar einnig eftir Þúsaldarmarkmiðum S.þ. um þróun.