Vissir þú að...

yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?

Þú ert hér:  

Innlend verkefni

UNICEF á Íslandi hefur í gegnum tíðina staðið að fjölda verkefna sem miða að því að auka réttindi barna á Íslandi og vekja athygli á innihaldi Barnasáttmálans.

Allt frá því að samtökin hófu starfsemi hérlendis hefur bæklingi um Barnasáttmálann verið dreift til allra 11 ára barna á landinu í samstarfi við Prentsmiðjuna Odda.

Kennsluvefurinn "Allir eiga rétt" er aðgengilegur á Netinu og er nýttur af kennurum um allt land.

Árið 2007 kom út rit á vegum UNICEF á Íslandi um Barnasáttmálann, með sérstakri áherslu á áhrif hans á íslensk lög. Ritið er ætlað til upplýsingar fyrir almenning og aðila sem starfar að málefnum barna.

Á síðustu árum hefur UNICEF verið í samstarfi við Barnaheill og umboðsmann barna um gerð fræðslu- og námsefnis um Barnasáttmálann. Það samstarf bar góðan ávöxt og á 20 ára afmælisdegi Barnasáttmálans opnaði forsætisráðherra fyrsta hluta námsvefjarins www.barnasattmali.is, þar sem börn á fyrsta stigi grunnskóla geta unnið gagnvirk verkefni sem fræða þau um réttindi sín eins og þau endurspeglast í greinum sáttmálans.

Auk þessara verkefna hefur UNICEF á Íslandi unnið að ýmsum rannsóknum og könnunum um réttindavitund og þátttökuáhuga barna á Íslandi og á Norðurlöndunum.

Vorið 2011 var verkefninu Stjórnlög unga fólksins síðan hleypt af stokkunum. Það var samstarfsverkefni UNICEF, umboðsmanns barna og Reykjavíkurborgar. Fjölmennt þing ungmennaráða var haldið í Iðnó í apríl og í júní var Alþingi og stjórnlagaráði afhent skýrsla með niðurstöðum þingsins.