Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Börn og skólar

UNICEF á Íslandi hefur þróað kennslu- og námsefni í réttinda- og mannréttindafræðslu fyrir börn og unglinga.

Meðal þeirra verkefna er kennsluefnið Allir eiga rétt sem Barnahjálp Sameinuðu Þjóðanna og Námsgagnastofnun gáfu út árið 2007 og Námsvefur um Barnasáttmála S.Þ. sem unnin var í samstarfi við Barnaheill.

Um þessi verkefni og önnur má lesa hér.

Einnig hefur UNICEF á Íslandi unnið að UNICEF-hreyfingunni sem er skemmtilegt verkefni fyrir allan skólann þar sem nemendur hljóta fræðslu um jafnaldra sína í öðrum heimshlutum og safna fé fyrir þurfandi börn um allan heim með því að stunda holla hreyfingu.

Frekari upplýsingar um UNICEF-hreyfinguna og hvernig er hægt að taka þátt er að finna hér.