Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

Útgefið efni

Hér finnur þú skýrslur og rannsóknir sem útgefnar eru af UNICEF á Íslandi:

Child Trafficking in the Nordic Countries: Rethinking strategies and national responses.

Ný skýrsla UNICEF um viðbrögð stjórnvalda við mansali barna í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Noregi og á Íslandi. Í skýrslunni kemur fram að öll löndin hafi sýnt mikla viðleitni til að taka á mansali barna, en að nálganir í aðgerðum gegn mansali geti jafnframt verið of einangraðar sem hefur leitt til þess að mál sumra barna falli ekki innan þröngra skilgreininga og börnin fái þar af leiðandi ekki viðeigandi aðstoð.

Child trafficking in Guinea-Bissau - An explorative study.

Höfundar skýrslunnar eru Jónína Einarsdóttir prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, Geir Gunnlaugsson landlæknir, Gunnlaugur  Geirrson laganemi og Hamadou Boiro mannfræðingur.

Barnasáttmálinn – Rit um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins með vísun í íslenskt lagaumhverfi.

Ritstjóri er Þórhildur Líndal.

Ritið má nálgast á skrifstofu UNICEF á Íslandi að Laugavegi 42 og kostar það 3.950 kr. Einnig er hægt að senda póst á unicef@unicef.is eða hringja í síma 552 6300.

 

Gerð var könnun meðal 12-16 ára ungmenna á öllum Norðurlöndunum um þátttöku- og réttindavitund þeirra og viðhorf til hinna ýmsu þátta.

Smellið á myndina til að nálgast skýrsluna.

   

 

Nýjustu ársskýrslur UNICEF á Íslandi. Smellið á myndirnar til að skoða pdf-skjöl:

ársskýrsla UNICEF