Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

Ársskýrsla 2009

Í nýjustu ársskýrslu UNICEF frá árinu 2009 er fjallað sérstaklega um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem árið 2009 markaði 20 ára afmæli sáttmálans. Farið er yfir innlend verkefni á vegum UNICEF á Íslandi sem mörg má rekja til afmælisins.

Einnig er sagt frá fjáröflun en þar ber hæst sá fjöldi heimsforeldra sem bættist í hópinn í tengslum við söfnunarátakið, Dagur rauða nefsins, í lok árs 2009.

Farið er yfir fjármál landsnefndarinnar en framlög til hjálparstarfs námu tæpri 241 milljón króna árið 2009, þar af fóru yfir 114 milljónir til valinna verkefna í löndum eins og Austur-Kongó, Mósambík, Síerra Leóne og til neyðarhjálpar á hernumdu svæðum Palestínu.

Tæp 127 milljónir voru sendar til reglubundinna verkefna UNICEF, sem þýðir að UNICEF útdeilir þeim eftir því hvar þörfin er mest. Skiptir mestu um framlag heimsforeldra, mánaðarlegra styrktaraðila UNICEF, en 64% af heildartekjum kom frá þeim.