English version

Útgefið efni

The State of the World’s Children 2008: Child Survival
The State of the World’s Children 2008 er flaggskip UNICEF og kemur út árlega. Í síðustu SOWC er sjónum beint að Þúsaldarmarkmiði Sameinuðu þjóðanna númer 4, sem er að lækka tíðni barnadauða (undir 5 ára) um tvo þriðju frá 1990 til 2015. Nýlegar tölur sýna að dregið hefur úr barnadauða um helming síðan árið 1960 og er nú í fyrsta skipti undir 10 milljónum á ári. Skýrslan skoðar þá reynslu sem fengist hefur í heilsugæslu barna í síðustu áratugum og bendir á aðferðir til að draga enn frekar úr dauða barna undir fimm ára aldri. Í lok skýrslunnar má sjá lista yfir öll lönd heims og hvernig þau standa sig á hinum ýmsu sviðum sem snerta börn. Þar kemur m.a. fram að Ísland er með lægsta tíðni ungbarnadauða í heimi.

  

 

Progress for Children: A World Fit for Children Statistical Review (No. 6)
Sjötta útgáfa Progress for Children greinir frá stöðu barna í þeim markmiðum sem leiðtogar Sameinuðu þjóðanna settu á sérstökum fundi allsherjarþingsins um málefni barna í maí 2002. Þessi útgáfa skoðar yfir 35 vísbendingar á þeim fjóru sviðum sem fundurinn taldi nauðsynlegar til að byggja „betri heim fyrir börn“. Skýrslan skoðar Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna ofan í kjölinn og veitir upplýsingar um stöðu barnaverndar.

 

Annual Report 2007
Alþjóðlega árskýrsla UNICEF 2007 lýsir í smáatriðum starfi Barnahjálpar sameinuðu þjóðanna í þágu barna og fjölskyldna þeirra í 155 löndum og svæðum. Skýrslan dregur fram áskoranir og afrek UNICEF og samstarfsaðila á leið til uppfyllingar Þúsaldarmarkmiðanna. Hún einnig fjallar um sögulega fækkun barnadauða (undir fimm ára aldri) sem var rétt undir 10 milljónum 2006, vel heppnuð menntaátök í löndum sem eru að jafna sig eftir kreppur, frumkvæðisverkefni til að koma í veg fyrir smit á HIV frá móður til barns og viðbrögð á vettvangi við náttúruhamförum og stríðum. Ársskýrslu UNICEF á Íslandi má nálgast hér.

 

 

Children and AIDS: Second stocktaking report
Þessi skýrsla fer yfir framfarir á fjórum sviðum sem hafa orðið á undanförnum árum á því hvernig HIV/alnæmi snertir börn. Niðurstöður skýrslunnar benda til að góður árangur hefur nást í flestum löndum við að koma í veg fyrir smit frá móður til barns og meðhöndlun barna sem eru í smithættu. Sum lönd hafa náð markmiðum sínum varðandi heftun á útbreiðslu HIV, auk þess sem fleiri alnæmissmituð börn njóta góðs af vernd, aðhlynningu og stuðningi. En margt er enn óunnið. Skýrslan útskýrir þörfina fyrir að bæta reglur, staðla og viðmið til að tryggja áhrifaríka útfærslu verkefna.

 

 

 

Climate Change and Children
Climate Change and Children fjallar um áhrif loftslagsbreytinga á börn og skoðar hvernig loftslagsbreytingar hafa þróast út frá sjónarmiði umhverfisverndar til þess að vera sjónarmið sem krefst sérfræðiþekkingar á skilvirkri þróun, öruggri orku, og áhrifum á heilsu og hagsmunum barna. Skoðanir ungs fólks má lesa í ábendingum og bréfum sem UNICEF hefur safnað frá börnum og ungmennum um allan heim í gegnum netið, fulltrúum barna sem sóttu UNEP ráðstefnu Afríkuríkja um umhverfismál 2007 og heimsmóti skáta 2007 sem haldið var í samvinnu við þróunarverkefni Sameinuðu þjóðanna.

 

1946-2006 Sixty Years for Children
1946-2006 Sixty Years for Children minnist 60 ára afmæli samtakana og rekur hvernig aðstæður og þarfir barna hafa þróast síðan í seinni heimstyrjöldinni frá einum áratug til annars. Þetta sögulega ágrip fjallar um framlag Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í heimi sem hefur breyst á félagslegu, pólitísku og efnahagslegu sviði í áranna rás. Skýrslan horfir að lokum til ársins 2015, tímamörkin sem UNICEF og önnur alþjóðasamtök hafa sett sér til að ná Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun, en þau munu breyta lífum milljóna barna.