Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

Úttektir og rannsóknir

 Norræna samanburðarskýrslan um þátttöku og réttindavitund barna

UNICEF á Íslandi gerði í samvinnu við Barnahjálpina á hinum Norðurlöndunum könnun á viðhorfum 12-16 ára barna, til réttinda og þátttöku. Könnunin er mjög viðamikil og var framkvæmd í ágúst 2009 til frebrúar 2010.  Niðurstöður könnunarinnar  voru gefnar út á sama tíma í öllum Norðurlöndunum, þann 21.apríl 2010.

Markmið könnunarinnar var að ákvarða að hvaða marki er hlustað á börn og í hvaða málefnum þau vilja að sé hlustað á sig. Þar með var varðaður vegur til aukinnar og betri þátttöku barna í daglegu lífi inni á heimilum, í skóla, tómstundastarfi ungmenna og lífsgæða svo eitthvað sé nefnt.

Kannað var hversu meðvitaðir nemendur efsta stigs grunnskóla á Norðurlöndunum eru um réttindi barna og um mannréttindi almennt. Viðhorf til fjölmiðla, upplýsingar og þátttökuleiða voru einnig skoðuð og hvaða aðferðir þessi aldurshópur nýtir til að hafa áhrif.

Þetta var í fyrsta skipti sem öll Norðurlöndin sameinast í þessari könnun, en þetta var þriðja skiptið sem hún var framkvæmd í Noregi. Skýrsluna má nálgast hér.

Skýrsla um þátttöku og réttindavitund barna á Íslandi.

Úr niðurstöðum Norrænu samanburðarskýrslunnar var unnin sérstök úttekt á niðurstöðum er varða íslensk börn, eftir landshlutum. Skýrsluna má nálgast hér.

 

Mansal á Norðurlöndum

Árið 2009 gekk Innocenti Rannsóknarstofnun UNICEF í samstarf við landsnefndir UNICEF á Íslandi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og Noregi um að gera sameiginlega rannsókn á umfangi og áhrifum mansals á Norðurlöndum. Markmið rannsóknarinnar er að greina lands- og alþjóðalög og stefnur sem er unnið eftir í dag til að koma í veg fyrir og bregðast við mansali barna. Hér er hægt að skoða skýrsluna.

Kennsla í mannréttindum

UNICEF á Íslandi og Námsgagnastofnun gáfu út kennsluefni fyrir efri bekki grunnskóla árið 2007. Efninu er ætlað að auka þekkingu ungmenna á mannréttindum og draga úr fordómum. Efnið er eingöngu að finna á vefnum og þar má prenta út öll verkefnin og gögnin sem því fylgja.

Kennsluefnið má nálgast hér á vef Námsgagnastofnunar og hefur að geyma fjölda verkefna og verkfæra sem kennarar geta nýtt sér í mannréttindakennslu.

 

Kennsluefnið er ætlað eldri deildum grunnskóla og til hjálpar kennurum við að fræða ungmennin um réttindi sín sem og skyldur. Efnið hvetur ungmennin til þess að þróa með sér umburðarlyndi og samstöðu með öðrum íbúum jarðarinnar, friðarvilja, skilning á félagslegu réttlæti og meðvitund um umhverfið og verndun þess.