Þú ert hér:  

Vernd

  • © UNICEF/020053/LeMoyneÍ dag eru um 126 milljónir barna í mjög hættulegri vinnu og 250 þúsund börn eru notuð í hermennsku.
  • UNICEF álítur að vernd barna sé ein af forsendum þess að börn njóti góðrar heilsu, menntunar og velferðar.

Því miður eru milljónir barna misnotuð, milljónir arðrænd og milljónir eru fórnarlömb ofbeldis. Á hverjum degi ganga börn kaupum og sölum eins og hverjar aðrar neysluvörur. Börn eru þvinguð í hermennsku, vændi, þrælkun og þjónustu.

Misnotkun, arðrán og ofbeldi fer oftast leynt og er í mörgum tilvikum hluti af skipulagðri glæpastarfsemi og spillingu.

UNICEF trúir því að allir séu ábyrgir fyrir velferð barna. Við vinnum með einstaklingum, borgarahópum, ríkisstjórnum og einkageiranum til þess að skapa verndandi umhverfi fyrir börn. Heilbrigt og nærandi umhverfi gerir börnum kleift að veita viðnám gegn misnotkun og arðráni. Umhyggjusamt umhverfi styrkir börn gegn skaða á sama hátt og rétt næring og góð heilsugæsla styrkir þau gegn sjúkdómum.

UNICEF getur nýtt sér einstaka aðstöðu sína í alþjóðasamfélaginu til að frelsa börn frá hermennsku. UNICEF sér einnig til þess að fórnarlömbum ofbeldis, arðráns og misnotkunar sé veitt áfallahjálp og stuðningur til að aðlagast samfélaginu að nýju. Að lokum reynir UNICEF að sameina börnin fjölskyldum sínum eins og kostur er.

Nánar um vernd barna á unicef.org