Vissir þú að...

UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.

Þú ert hér:  

Barnaþrælkun

©UNICEF/HolmesÁætlað er að 246 milljónir barna séu í ánauð barnaþrælkunar. Af þeim vinnur næstum þriðjungur (171 milljónir) í skaðlegum aðstæðum, þ.e. í námum, vinna með efni og skordýraeitur í landbúnaði, við hættulegar vélar eða þræla við þjónustu á heimilum.

Milljónir stúlkna vinna sem heimilisþernur og ólaunuð heimilishjálp. Á slíkum vinnustöðum eru þær sérstaklega berskjaldaðar fyrir arðráni og misnotkun. Milljónir annarra barna vinna undir hræðilegum aðstæðum. Þau er seld (1,2 milljónir), þvinguð í ánauð eða annarskonar þrældóm (5,7 milljónir), þvinguð í vændi eða klám (1,8 milljónir), þvinguð til þess að taka þátt í hernaðarátökum (300 þúsund) eða öðrum ólöglegum aðgerðum (600 þúsund). Meiri hluti barna, eða 70%, vinnur í landbúnaði.

Nokkrar staðreyndir eftir heimshlutum: 

  • Asía og Kyrrahafssvæðið eru með flest börn í vinnu í 5-14 ára aldursflokknum, alls 127,3 milljónir (19% af börnum svæðisins).
  • Áætlað er að 48 milljónir barna vinni í löndum Afríku sunnan Sahara. Næstum eitt af hverjum þrem börnum (29%) undir 15 ára vinna.
  • Áætlað er að 17,4 milljónir barna vinni í Suður-Ameríku og eyjum Karabíska hafsins (16% af börnum svæðisins).
  • 15% barna vinna í Miðausturlöndum og Norður-Afríku.
  • Um það bil 2,5 milljónir barna vinna í iðnvæddum löndum og löndum sem eru að iðnvæðast.