þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.
Þú ert hér:
UNICEF-verndarar kallast ný fjáröflunarleið UNICEF sem er sérstaklega sniðin fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Verndarar barna borga mánaðarlega til menntaverkefnis UNICEF í fátækustu ríkjum Vestur-Afríku.
Verndara-verkefnið er ákaflega verðugt. Byggðir verða skólar, kennarar þjálfaðir auk þess sem keyptar verða skólabækur og annar búnaður fyrir kennslu. Við hvetjum þig til að vera með og gerast verndari barna.
Hvers vegna á fyrirtæki mitt að gerast UNICEF-verndari?
Okkur hjá UNICEF Ísland er umhugað um að UNICEF-verndari fái hag af samstarfinu við UNICEF um leið og þau styðja við þurfandi börn. Verndarar fá ...
Fjárframlag mánaðarlega eða tvisvar á ári
Verndarar greiða mánaðarlega fasta upphæð sem þeir ákveða sjálfir. Lægsta upphæðin er 7.500 kr. á mánuði. Um fjórar greiðsluaðferðir er að ræða: