Jákvæð kynning fyrirtækja
Með því að gerast styrktaraðili að verkefnum UNICEF er fyrirtæki þitt að tengja nafn sitt við þá góðu ímynd sem stærstu barnahjálparsamtök í heimi hafa byggt upp um leið og það lætur gott af sér leiða.
Forsvarsmenn markaðsmála hjá Procter & Gamble sögðu „hvað er göfugra en að sjá þurfandi börn í heiminum njóta góðs af blómlegu markaðsstarfi fyrirtækisins?“ Þetta er í raun kjarni málsins um aðkomu fyrirtækja að þróunarverkefnum UNICEF.
Kannanir á vegum Cone/Roper hafa staðfest að neytendur hafa mun jákvæðara viðhorf gagnvart fyrirtækjum sem styðja málefni sem fólki er umhugað um. Eins kemur í ljós að markviss stuðningur við hjálparsamtök leiðir til meiri tryggðar starfsfólks við fyrirtæki sitt.
Með því að gerast UNICEF-verndari sýna fyrirtæki frumkvæði og styrk gagnvart viðskiptavinum sínum og samstarfsaðilum.