English version

Frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari heimsforeldra

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Ísland, hefur frá upphafi haft áhrif á mótun landsnefndar UNICEF á Íslandi og er hún í dag verndari heimsforeldra.

Fjórði forseti lýðveldisins, Vigdís Finnbogadóttir, er fædd 15. apríl 1930.

Vigdís varð stúdent árið 1949, stundaði nám í frönsku og frönskum bókmenntum í Grenoble og við Sorbonne-háskóla í París 1949-1953. Nám í leiklistarsögu við Kaupmannahafnarháskóla 1957-1958. BA-próf í frönsku frá Háskóla Íslands og próf í uppeldis- og kennslufræðum 1968. Vigdís er heiðursdoktor og heiðursprófessor við marga háskóla og stofnanir víðs vegar um heiminn.

Hún hefur verið sæmd heiðursdoktorsnafnbót við eftirfarandi háskóla: Háskólinn í Grenoble, Frakklandi (1985), Háskólinn í Bordeaux, Frakklandi (1987), Smith College, Bandaríkjunum (1988), Luther College, Bandaríkjunum (1989), Háskólinn í Manitoba, Kanada (1989), Háskólinn í Nottingham, Bretlandi (1990), Háskólinn í Tampere, Finnlandi (1990), Háskólinn í Gautaborg, Svíþjóð (1990), Gashuin háskólinn í Tokyo, Japan (1991), Háskólinn í Miami, Bandaríkjunum (1993), St. Mary´s háskólinn í Halifax, Kanada (1996), Háskólinn í Leeds, Bretlandi (1996), Memorial University, St John, Nýfundnalandi, Kanada (1997) Háskólinn í Guelph, Kanada (1998) og Háskóli Íslands, 2000.

Hún var blaðafulltrúi Þjóðleikhússins 1954-1957 og aftur 1961-1964, leiðsögumaður á sumrin um árabil, kennari við Menntaskólann í Reykjavík 1962-1967 og við Menntaskólann við Hamrahlíð 1967-1972. Kenndi um skeið við Háskóla Íslands og var leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur 1972-1980. Vigdís Finnbogadóttir var fyrsta konan í heiminum til að vera kjörinn forseti í þjóðaratkvæðagreiðslu.