English version

Vinir UNICEF

Sigur Rós tók þátt í degi rauða nefsins árið 2006 með því að heimsækja HIV verkefni UNICEF í Svasílandi. Ljósmyndir þeirra frá ferðinni hafa verið boðnar upp til styrktar UNICEF. Auk þess hafa þeir styrkt verkefni UNICEF í Gíneu-Bissá og lagt sitt af mörkum til styrktar kaups á bíl til heimahjúkrunar fyrir stuðningshóp HIV smitaðra í Svasílandi.

Björk Guðmundsdóttir, söngkona, heimsótti verkefni UNICEF í Banda Aceh ári eftir að fljóðbylgja skall þar yfir og olli mikilli eyðileggingu. Hún hefur gefið umtalsvert fé til stuðnings verkefnum UNICEF á neyðarsvæðum, m.a. með útgáfu á endurhljóðblöndunum á laginu Army of me og með því að gefa hluta af aðgangseyri miða vegna nýafstaðinnar tónleikaferðar um heiminn.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, tók þátt í degi rauða nefsins árið 2006 með því að heimsækja menntaverkefni UNICEF í Síerra Leóne. Ferð hennar vakti mikla athygli þar í landi og á Íslandi.

Sverri Þór Sverrisson (Sveppi), skemmtikraftur og leikari, fór og heimsótti heilsugæsluverkefni UNICEF í Gíneu-Bissá vegna dags rauða nefsins árið 2006. Hann var sömuleiðis kynnir í sjónvarpsútsendingunni á Stöð 2 þann 1. desember. Hann lagði sitt af mörkum til að kynna þau verkefni sem hann sá fyrir almenningi á Íslandi.

Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona, hefur unnið talsvert mikið sjálfboðastarf fyrir UNICEF á Íslandi. Hún var kynnir í sjónvarpsútsendingu dags rauða nefsins árið 2006 og lék í fjölda gríninnslaga, ásamt því að semja mörg þeirra.

Björn Thors, leikari, hefur unnið mikið og gott starf fyrir UNICEF á Íslandi, m.a. með því að kynna heimsforeldraverkefnið fyrir gestum söngleikjarins Hársins, lesa inn á myndbönd og auglýsingar fyrir UNICEF og sjá um fjáröflunarviðburði.

Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona og leikstjóri, hefur tekið virkan þátt í starfi UNICEF, m.a. með því að kynna heimsforeldraverkefnið fyrir gestum söngleikjarins Hársins, lesa inn á myndbönd og auglýsingar fyrir UNICEF.