22. október 2025

12 milljónir króna söfnuðust í neyðarsöfnun UNICEF og Krónunnar

Guðmundur Ingi Gunnarsson, fjáröflunarstjóri UNICEF á Íslandi, Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri og Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar

Saman söfnuðu Krónan og viðskiptavinir alls 12 milljónum króna í neyðarsöfnun fyrir börn á Gaza í samstarfi við UNICEF á Íslandi. Viðskiptavinum Krónunnar bauðst að bæta 500 krónum eða meira við innkaup sín í verslunum Krónunnar og jafnaði Krónan hvert framlag, krónu á móti krónu. Fjármagnið sem safnaðist mun renna óskert í neyðarsöfnunina fyrir Gaza, þar sem UNICEF vinnur að því veita íbúum svæðisins lífsnauðsynlega neyðaraðstoð, með sérstaka áherslu á börn.

Þörf á miklu fjármagni
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir að framlag viðskiptavina sé mannúðarstarfi UNICEF afar mikilvægt þar sem mikil neyð ríki á svæðinu. „Fram undan er stærsta mannúðaraðgerð sögunnar þar sem UNICEF leggur nótt við nýtan dag að tryggja börnum svæðisins langþráða næringu, hreint vatn, lyf, hlý föt og skjól. Þá bíður okkar einnig að koma skólagöngu þeirra aftur af stað eftir tveggja ára hlé og veita sálfélagslegan stuðning. Þetta kostar mikið fjármagn og því ómetanlegt að njóta þess vogarafls sem Krónan og viðskiptavinir hennar hafa lagt til verkefnisins. Saman erum við sterkari,“ segir Birna.

Samstaða skiptir máli
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar segir að viðtökur viðskiptavina hafi farið fram úr þeirra björtustu vonum. „Viðbrögðin sýna hversu miklu máli samstaða skiptir þegar á reynir. Á aðeins tíu dögum söfnuðust 12 milljónir króna, sem segir sitt um samhug og viljann til að láta gott af sér leiða. Við erum gífurlega þakklát þeim viðskiptavinum sem tóku þátt í þessu með okkur,” segir Guðrún.

Enn er hægt að styrkja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Gaza hér.

Fleiri
fréttir

14. nóvember 2025

Fellibylurinn stóri í Filippseyjum hefur áhrif á 1,7 milljón barna
Lesa meira

10. nóvember 2025

Bólusetja börn á Gaza
Lesa meira

06. nóvember 2025

Hvernig hjálpargögnin komast (ekki) til Gasa
Lesa meira
Fara í fréttasafn