01. júní 2026

Ársfundur UNICEF á Íslandi 2026

Ársfundur UNICEF á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 9. júní á skrifstofu UNICEF að Strandgötu 75 í Hafnarfirði. Fundurinn hefst kl. 10:00.

Edda Hermannsdóttir, formaður stjórnar UNICEF á Íslandi, mun stýra fundinum sem verður opinn almenningi og fjölmiðlum.

Á fundinum mun Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, kynna helstu niðurstöður í starfi landsnefndarinnar árið 2025 og samhliða kemur ársskýrsla UNICEF á Íslandi fyrir síðasta ár út.
Við hlökkum til að sjá þig.

Starfsfólk UNICEF á Íslandi

Fleiri
fréttir

16. júní 2026

Nær helmingur barna heims býr við minnst þrjár samverkandi loftslagshættur
Lesa meira

11. júní 2026

Lamine Yamal nýr velgjörðarsendiherra UNICEF
Lesa meira

10. júní 2026

Fimm piltar breyttu lokaverkefninu í ótrúlegan fjáröflunarleik fyrir UNICEF 
Lesa meira
Fara í fréttasafn